Bandarískir þingmenn kalla Huang til yfirheyrslu

Jensen Huang hefur látið af störfum hjá Nvidia. Þing­nefndir vilja fá svör um tengsl hans við konu sem grunuð er um njósnir. Mark­aðsvirði Nvidia hefur lækkað um nærri 500 millj­arða doll­ara eftir að upp komst um ást­ar­sam­bönd Huang.

Kallaður til skýrslugjafar
Kallaður til skýrslu­gjafar Jensen Huang hefur látið af störfum sem for­stjóri Nvidia. Banda­rískir þing­menn vilja fá svör frá honum um tengsl hans við konu sem grunuð er um njósnir. Mynd: BRENDAN SMIALOWSKI / AFP

Banda­rískir þing­menn hafa boðað Jensen Huang, einn helsta frum­kvöðul upp­gangs gervi­greindar, fyrir þing­nefnd til að svara spurn­ingum. Hann á að koma fyrir nefnd­ina í des­em­ber. Huang lét af störfum sem for­stjóri Nvidia eftir að upp komst um tvö fram­hjá­höld hans, meðal ann­ars við konu sem grunuð er um að vera kín­verskur njósn­ari.

Hneykslið hefur lækkað mark­aðsvirði Nvidia um nærri 500 millj­arða doll­ara, eða um 61,6 billjónir króna. Það hefur vakið áhyggjur af þjóðar­ör­yggi og skapað óvissu í gervi­greind­ar­iðn­að­inum.

„Nýlegar fréttir vekja alvar­legar áhyggjur af þjóðar­ör­yggi okkar og vernd við­kvæmrar banda­rískrar tækni,“ skrif­aði Tim Scott, öld­unga­deild­ar­þing­maður Repúblikana­flokks­ins, á X í gær.

Scott sagð­ist hafa óskað eftir því að Huang og Howard Lutnick við­skipta­ráð­herra bæru vitni í des­em­ber fyrir banka­mála­nefnd öld­unga­deild­ar­innar, sem Scott er for­maður í.

Þrjár nefndir full­trúa­deild­ar­innar hafa einnig kallað hinn 63 ára gamla Huang, sem er þekktur fyrir að klæð­ast leð­ur­jakka, í við­tal fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár