Myrkur í ágúst 18 — Eldklerkurinn sér almyrkva

Jón Stein­gríms­son eld­klerkur lýsti almyrkva á sólu 17

Þarna blandar gervigreindin öllu saman,
Þarna blandar gervi­greindin öllu saman, Skaft­ár­eldum, sól­myrk­vanu löngu fyrr og eld­mess­unni, auk hinnar fram­and­legu kirkju.

Þá er runn­inn upp stóri dag­ur­inn, dagur sól­myrk­vans.

Greinin frá í gær er hérna, en lítum nú lengra aftur í tím­ann.

Sumarið 1783 hófst sá atburður á Íslandi sem afdrifa­rík­astur hefur orðið fyrir fólk í öðrum löndum. Á hvíta­sunnu­dag 6. júní hófst eld­gos á hálend­inu norður af hinni svo­nefndu Síðu­sveit á suð­aust­ur­hluta lands.

Gíf­ur­legt magn hrauns og ösku vall þar úr mörgum sprungum mán­uðum saman. Hraunin rann niður í byggð­ina og eyði­lagði fjölda bænda­býla svo hund­ruð manna flúðu í aðra lands­hluta. Prestur sveit­ar­innar, Jón Stein­gríms­son, skrif­aði magn­þrungna og dramat­íska lýs­ingu á eld­gos­inu og afleið­ingum þess.

Eldmóður eldklerksins

Þessi heim­ild er ein­stæð í sinni röð í heim­inum. Jón lýsir gangi goss­ins á raunsannan hátt en fræg­asti kafli lýs­ing­ar­innar er þó þegar hann lýsir messu sem hann hélt í kirkj­unni á Kirkju­bæj­ar­klaustri sem menn ótt­uð­ust að yrði brátt fyrir hinum ógn­væn­lega hraun­straumi. Meðan Jón og sókn­ar­börn báðu guð mis­k­unnar inni í reyk­fylltri kirkj­unni sneri hraun­straum­ur­inn af leið sinni og braut sér aðra leið. Jón var ekki seinn á sér að gefa í skyn að trú­ar­eld­móður hans og sókn­ar­barn­anna hefðu orðið til þess að milda guð, sem þó hefði hleypt eld­gos­inu af stað, og því hefði guð hlíft kirkj­unni.

Og var Jón gjarnan síðan nefndur Eld­klerk­ur­inn.

Harðindin stóðu í tvö þrjú ár

En hafi guð átt þar hlut að máli hlífði hann sveit­ar­mönnum og þeim sem bjuggu í nágranna­sveit­unum þó ekki lengi. Í kjöl­far eld­goss­ins og þeirrar eitr­uðu ösku sem féll um stóran hluta Íslands varð upp­skeru­brestur, búpen­ingur dó og sóttir brut­ust út. Íbúar Íslands höfðu verið um 40.000 en einn fjórði hluti þeirra dó í þeim „móðu­harð­indum“ sem kennd voru við ösku­móð­una í loft­inu. Harð­indin stóðu í tvö þrjú ár og Íslend­ingar hafa senni­lega aldrei verið færri frá land­námi en eftir að þeim lauk. 

Milljónir létu lífið

En ekki nóg með það. Gosefni frá Skaft­ár­eldum, en svo er gosið yfir­leitt nefnt hér á landi, ruku upp í háloftin og dreifð­ust um stóran hluta norð­ur­hvels jarðar. Óyggj­andi vís­inda­legar nið­ur­stöður hafa sýnt fram á að þessi gos­efni ollu kólnun and­rúms­lofts víða um heim sem síðan leiddi af sér harð­indi og hung­ursneyðir allt frá Norður-Ameríku til Japans, og frá Egypta­landi til Indlands.

Það mun vera stað­reynd að millj­ónir manna hafi dáið í þessum harð­indum sem eld­gosið á Íslandi átti rík­astan þátt í að hleypa af stað.

„Lengi varð dimmt sem nótt væri komin“

Því hefur meira að segja verið haldið fram að gosið í Laka­gígum hafi haldið þeim harð­indum og erf­ið­leikum í Frakk­landi sem ollu því að óánægja almenn­ings sauð upp úr 1789 og franska bylt­ingin braust út.

En það er reyndar ærið vafa­samt.

Athygl­is­vert er að í sjálfsævi­sögu séra Jóns Stein­gríms­sonar, sem er ekki síður merki­legt rit en lýs­ingar hans af eld­gos­inu 1783, lýsir hann almyrkva á sólu sem varð þegar hann var aðeins fjög­urra ára. Þá „for­myrkvað­ist sólin svo um nón­bilið að lengi varð dimmt sem nótt væri komin“. Þetta átti sér stað norð­an­lands 17. maí 1733.

Eftir almyrk­vann sem Jón eld­klerkur varð vitni að varð hvergi almyrkvi á sólu á Íslandi fyrr en 100 árum seinna. 

„Þá for­myrkvað­ist sólin“

Listi yfir almyrkva

Eft­ir­far­andi listi um almyrkva er feng­inn af vef­síðu Almanaks Háskóla Íslands (sjá hérna) en hann er líka að finna, ásamt marg­vís­legum öðrum fróð­leik á sér­stakri sól­myrkva­síðu Sævars Helga Brag­sonar:

849  25. maí.
Siglu­fjörður, Ólafs­fjörður, Dalvík, Akureyri, Grímsey, Reykja­hlíð, Húsavík, Rauf­ar­höfn, Þórshöfn, Vopna­fjörður, Egils­staðir, Seyð­is­fjörður, Norð­fjörður, Eski­fjörður, Reyð­ar­fjörður, Djúpi­vogur.

878  29. októ­ber.
Ólafsvík, Grinda­vík, Keflavík.

1077  25. febr­úar. 
Pat­reks­fjörður, Bol­ung­ar­vík.

1131  30. mars. 
Stykk­is­hólmur, Ólafsvík, Pat­reks­fjörður, Ísa­fjörður, Bol­ung­ar­vík Hólmavík.

1312  5. júlí. 
Egils­staðir, Seyð­is­fjörður, Eski­fjörður, Reyð­ar­fjörður, Kirkju­bæj­ar­klaustur, Vík, Vest­manna­eyjar.

1330  16. júlí.
Vest­manna­eyjar, Þor­láks­höfn, Grinda­vík, Keflavík.

1339  7. júlí.
Hval­fjarð­ar­mynni - Hest­fjall - Mýr­dals­jök­ull - Með­al­lands­sandur.

1424  26. júní.
Vest­manna­eyjar.

1433  17. júní.
Reykja­vík, Vík, Vest­manna­eyjar, Hvols­völlur, Selfoss, Þor­láks­höfn, Grinda­vík, Keflavík.

1469  9. júlí.
Hvera­vellir, Akureyri, Reykja­hlíð, Húsavík, Rauf­ar­höfn, Þórshöfn, Vopna­fjörður, Egils­staðir, Seyð­is­fjörður, Norð­fjörður, Eski­fjörður, Reyð­ar­fjörður, Djúpi­vogur, Höfn, Kirkju­bæj­ar­klaustur, Vík, Vest­manna­eyjar, Hvols­völlur, Skálholt, Selfoss, Þor­láks­höfn.

1733  13. maí.
Siglu­fjörður, Ólafs­fjörður, Dalvík, Grímsey, Reykja­hlíð, Húsavík, Rauf­ar­höfn, Þórshöfn, Vopna­fjörður, Egils­staðir, Seyð­is­fjörður, Norð­fjörður, Eski­fjörður, Reyð­ar­fjörður.

1833  17. júlí.
Hvera­vellir, Reykja­hlíð, Rauf­ar­höfn, Þórshöfn, Vopna­fjörður, Egils­staðir, Seyð­is­fjörður, Norð­fjörður, Eski­fjörður, Reyð­ar­fjörður, Djúpi­vogur, Höfn, Kirkju­bæj­ar­klaustur, Vík, Vest­manna­eyjar, Hvols­völlur, Skálholt, Selfoss, Þor­láks­höfn.

1851  28. júlí.
Grímsey, Rauf­ar­höfn, Þórshöfn, Vopna­fjörður.

1954  30. júní.
Vík, Vest­manna­eyjar.

2026  12. ágúst.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Furðufesiðhúnbellabeljahefurvistvoðalitiðaðsegja
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Furðufesiðhúnbellabeljahefurvistvoðalitiðaðsegja
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Furðufesiðhúnbellabeljahefurvistvoðalitiðaðsegja
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Furðufesiðhúnbellabeljahefurvistvoðalitiðaðsegja
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Furðufesiðhúnbellabeljahefurvistvoðalitiðaðsegja
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Furðufesiðhúnbellabeljahefurvistvoðalitiðaðsegja
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Furðufesiðhúnbellabeljahefurvistvoðalitiðaðsegja
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár