Fréttamál

Samherjaskjölin

Rannsóknir

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.
Fréttir

Samherji vildi bjóða „Stóra manninum“ frá Namibíu á Fiskidaginn

Fiski­dag­urinn mikli á Dalvík verður haldinn aftur í fyrsta skipti í ár frá því 2019 og styrkir Samherji hátíðina. Útgerðar­félagið Samherji hefur verið helsti styrktar­aðili Fiskidagsins í gegnum tíðina. Árið 2012 ræddu starfs­menn Samherja um mögu­leikann á því að bjóða sjávar­útvegs­ráðherra Namibíu, Bernhard Esau, á Fiskidaginn og var það sögð vera sérstök ósk Þorsteins Más Baldvins­sonar að hann væri á Íslandi í kringum þennan dag.
Fréttir

Yfir­lýsingar lögmanns Samherja í mótsögn við forstjóra

Forsvars­menn Samherja, þar á meðal Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri, hafa haldið því fram að Namibíu­málið hafi engin áhrif haft á viðskipti sjávar­útvegs­fyrir­tækisins. Lögmaður fyrir­tækisins sagði hins vegar fyrir dómi í Bretlandi í síðasta mánuði að stórir viðskipta­vinir hefðu stöðvað viðskipti sín við fyrir­tækið í kjölfar umfjöllunar um málið.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sakaður um stórfelld skatta­laga- og gjaldeyris­brot í Namibíu og fram­salskrafa væntanleg

Ríkis­saksóknari Namibíu er enn ákveðinn í því að óska eftir framsali þriggja stjórn­enda Samherja­félaga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjaldeyris­lögum muni mögulega bætast við sakar­efnin á hendur þeim. Stórfelld skatta­lagabrot Samherja­félaga sögð til rann­sóknar. Samherja­maður segir íslensk yfirvöld þegar hafa neitað að framselja sig.
Greining

Félag Þorsteins Más orðið að skel utan um 30 milljarða lán til barna hans

Eignarhalds­félag Þorsteins Más Baldvins­sonar og fyrr­verandi eiginkonu hans Helgu S. Guðmunds­dóttir á ekki lengur neinar fyrirtækja­eignir að ráði. Félagið hefur á síðustu árum, í kjölfar Samherja­málsins, losað sig við hlutabréf í íslenska útgerðar­félaginu Samherja hf, í útgerðum erlendis og í Eimskipum. Í dag er félagið ekkert annað en kennitala utan um seljendalán vegna sölu á 44 prósenta hlut í Samherja.

Mest lesið undanfarið ár