„Ég held að fyrirtækin spili stórt hlutverk í því að halda umræðunni gangandi,“ segir Anna Björk Bjarnadóttir, fyrsti stjórnarformaður Festu – miðstöðvar um sjálfbærni, um málaflokkinn.
Festa fagnaði fimmtán ára afmæli sínu í september. Anna Björk segir að miklar breytingar hafi orðið í atvinnulífinu síðan miðstöðin hóf starfsemi sína. Þá var hugtakið sjálfbærni fremur óþekkt.
Naflaskoðun eftir bankahrunið
„Það var ekki langt liðið frá bankahruninu sem að hafði kannski einhver áhrif á að það var mikið samtal í gangi – sérstaklega varðandi viðskiptasiðferði,“ útskýrir Anna Björk og segir að umræður um sjálfbærni í stærra samhengi hafi að vissu leyti þróast í kjölfarið. „Á þessum árum var maður eins og aðrir að reyna að átta sig á því hvað gerðist eiginlega fyrir og í hruninu. Þannig að það var ákveðinn jarðvegur fyrir því að fara í naflaskoðun og sýna góð vinnubrögð og skila af sér einhverju meira jákvæðu …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir