Þreyttir ferðalangar bjuggu sig undir frekari röskun á flugi í dag þegar flug frá bandarískum flugvöllum hófst á ný eftir nokkurra klukkustunda stöðvun. Stjórn Donalds Trump rakti stöðvunina til bilaðs búnaðar eða mistaka verktaka sem átti að skipta út gömlum fjarskiptalínum úr kopar.
Flugstöðvunin um öll Bandaríkin í gær olli víðtækri ringulreið og skildi hundruð þúsunda farþega eftir í óvissu. Starfsfólk flugfélaga kallaði suma þeirra úr flugvélum rétt fyrir brottför og virtist sjálft ekki vita hvað var að gerast.
„Þreytt. Örmagna. Pirruð. Já, þetta er bara algjört rugl, er það ekki?“ sagði Lisa Beraid, 48 ára starfsmaður tryggingafélags, við AFP þar sem hún beið eftir flugi á La Guardia-flugvelli í New York í morgun.
Bryan Bedford, yfirmaður bandarísku flugmálastjórnarinnar (FAA), sagði að 12.000 flugferðum hefði verið aflýst í gær. Líklegt væri að 4.000 til 5.000 af þeim 41.000 flugferðum sem áætlaðar væru í dag féllu einnig niður.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir