„Við erum öll höfð að fífli þegar svona er komið fram við okkur“

Björg Eva Erlends­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, segir fréttir af því að fernur séu enn brenndar vera annað kjafts­högg og verra en það fyrsta. Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, hefur kallað eftir gagn­gerri end­ur­skoðun á Úrvinnslu­sjóði.

Fernur til brennslu
Fernur til brennslu Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, og Björg Eva Erlends­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, gagn­rýna að fernur sem neyt­endur flokka séu sendar til brennslu í stað end­ur­vinnslu. Mynd: Samsett / Golli

Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, og Björg Eva Erlends­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, segja að þau og aðrir neyt­endur hafi verið höfð að fíflum vegna end­ur­vinnslu á fernum. Íslend­ingar skola, brjóta saman og flokka millj­ónir ferna á hverju ári í þeirri trú að þær verði end­ur­unnar.

„Ég hugsa bara með sjálfum mér: It is Deja Vu all over again,“ segir Breki. Heim­ildin greindi frá því í nýút­komnu tölu­blaði að þrátt fyrir lof­orð um annað séu fernur frá íslenskum neyt­endum sendar til brennslu en ekki end­ur­vinnslu.

Ólöglegt að plata neytendur

Breki segir Neyt­enda­sam­tökin hafa lagt til breyt­ingar á Úrvinnslu­sjóði, meðal ann­ars að sam­tökin og Land­vernd fái hvort um sig að skipa full­trúa í stjórn sjóðs­ins eða fái áheyrn­ar­full­trúa.

„Við hjá Neyt­enda­sam­tök­unum höfum gagn­rýnt þetta kerfi gíf­ur­lega og það virð­ist ekki hafa …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Ég man það að fernur voru bara sendar í "endurvinnslu" rétt til að byrja með eftir að flokkun hófst. Árum saman voru fernurnar urðaður eins og annað sorp. Samt var mikil áhersla lögð á að flokka og skola fernurnar en núna skiptir flokkun engu máli og tilgangslaust að kvarta þó einhver setji kjúklingabein í pappírstunnuna.
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Til hvers er þá verið að láta okkur flokka og þurfa að vera með margar ruslatunnur? Hversu stórt er umhverfisfótsporið af auknu umfangi og flækjustigi sorphirðu vegna flokkunaráráttu?
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Ömurlegt. Hver tekur ákvörðun um þetta? Hver er staða umhverfismála á Íslandi í dag?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fernurnar brenna

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár