Ákveðið hefur verið að senda íslenskar fernur aftur í brennslu í stað endurvinnslu, þremur árum eftir að stjórnvöld, Úrvinnslusjóður og Sorpa lofuðu að tryggja endurvinnslu þeirra.
Þrátt fyrir það telur Jóhann Páll Jóhannsson, núverandi umhverfisráðherra, mikilvægt að almenningur haldi áfram að flokka fernur með pappír og pappa. Hann bendir á að blandaður úrgangur sé urðaður í sumum sveitarfélögum og að brennsla með orkunýtingu sé skárri kostur en urðun.
Sumarið 2023 greindi Heimildin frá því að langflestar fernur sem flokkaðar voru á Íslandi enduðu í brennslu í sementsverksmiðjum í Evrópu. Umfjöllunin varð til þess að Sorpa baðst afsökunar og Mjólkursamsalan krafðist réttrar meðferðar á umbúðum sínum.
Í kjölfar fundar með þáverandi umhverfisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, lofuðu sjóðurinn og Sorpa að tryggja að fernurnar yrðu í raun endurunnar. Öllum þeim tugmilljóna ferna sem Íslendingar skola, brjóta saman og flokka samviskusamlega árlega átti að senda til endurvinnslu, koma þeim í …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




























Það mætti hins vegar hugsa meira um það að gera landbúnaðinn õháðan jarðeldsneyti, t.d. með því að styðja bændur að framleiða sitt eigið lífrænt metangas úr mýkju og plöntuleifum. Mér skilst að lítið mál sé að láta vélarnar keyra á metani og samhliða sparist mikil gjaldeyri.