Mjólkursamsalan harmar að fernur séu brenndar

Mjólk­ur­sam­salan seg­ist hafa treyst því að eft­ir­lit með úrvinnslu fern­anna væri í lagi. Fyr­ir­tækið hefur greitt 65 millj­ónir króna fyrir end­ur­vinnslu á fernum sem eru í raun brenndar.

Flokkaðar
Flokk­aðar Neyt­endur eru hvattir til að skola margar fernur Mjólk­ur­sam­söl­unnar og flokka þær með pappír til end­ur­vinnslu. Þær þó ekki end­ur­unnar eins og pappír heldur brenndar. Mynd: Golli

Rúm 1.000 tonn af fernum sem Mjólk­ur­sam­salan notar eru brennd árlega. Fyr­ir­tækið greiðir um 65 millj­ónir króna á ári í úrvinnslu­gjald vegna þeirra. Aðrar fernur sem Íslend­ingar nota enda einnig í brennslu. MS harmar að end­ur­vinnslu­mögu­leikar þeirra séu ekki nýttir sem skyldi. Á mörgum fernum eru neyt­endur hvattir til að skola þær og koma þeim í end­ur­vinnslu, en þær eru ekki end­ur­unnar.

Treystu því að ferlarnir væru í lagi

Í skrif­legu svari segir Mjólk­ur­sam­salan að hún hafi treyst því að ferlar við með­höndlun fern­anna væru í lagi og við­eig­andi eft­ir­lit með þeim.

„Mjólk­ur­sam­salan harmar að þeir end­ur­vinnslu­ferlar sem í boði eru fyrir bland­aðar drykkj­ar­um­búðir séu ekki nýttir sem skyldi“
Mjólk­ur­sam­salan

„Samkvæmt upp­lýs­ingum á heima­síðu Úrvinnslu­sjóðs er úrvinnslu­gjaldið ætlað til að standa undir með­höndlun og end­ur­nýt­ingu umbúða eftir að þær hafa þjónað upp­haf­legum til­gangi sínum. Með greiðslu gjalds­ins hefur MS treyst því að þessir ferlar …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þetta er ekki til þess að auka á trúverðuleikann gagnvart sorteringu sorps. Margir halda því fram að sorteringin sé sviðsetning, þegar ferlið sem við þegnarnir höfum verið þvingaðir í með vinnu og gjöldum þá er draslinu sturtað í sama hauginn á Sorpu og flutt út.
    0
  • Bjarni Bjarnason skrifaði
    Skrýtið að lesa svona frétt þar sem því er ekki fylgt eftir hvers vegna fernurnar eru ekki endurunnar......... er það ekki sorpa sem sér um það og ætti að svara þessu.....?????
    1
  • GM
    Gretar Marinosson skrifaði
    Það á alveg eftir að svara því hvers vegna fernurnar eru ekki endurunnar og hver ætli að sjá til þess að svo verði?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fernurnar brenna

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár