Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði að Bandaríkin hefðu lagt til að Úkraína léti Rússum landsvæði eftir gegn aðild að Atlantshafsbandalaginu. Stjórn hans ætti jafnframt í viðræðum um „tilteknar“ öryggistryggingar frá Vesturlöndum.
„Bandaríkjamenn spurðu: ‚Hvað ef Úkraína gengi í Atlantshafsbandalagið? Myndi Úkraína hverfa frá Donbas?‘ Þetta var í fyrsta sinn sem þetta var borið upp,“ sagði Selenskí við blaðamenn í gær. Ekki mátti birta ummælin fyrr en í dag.
Hann sagði Úkraínu ræða „tilteknar öryggistryggingar frá Atlantshafsbandalaginu og Evrópusambandinu“. Ef vestræn ríki staðfestu þær myndi hann „spyrja úkraínsku þjóðina hvað henni finnist: Eigum við að samþykkja þetta eða ekki? Ég hef ekki rétt til að taka þá ákvörðun einn.“
Selenskí sagði Evrópusambandið og Atlantshafsbandalagið einu „raunverulegu öryggistrygginguna“ í Evrópu. Hann varaði við því að tilraunir ráðamanna í Kreml til að breyta öryggisskipan álfunnar gætu leitt til fleiri stríða.

Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

















































Athugasemdir