Segir skýrt að það sé ekki heimilt að fara í Selárlaug eftir lokun

Sveitar­stjóri Vopna­fjarðar­hrepps hefur ekki kært innbrot í Selárlaug til lögreglu eftir að fimm þingmenn fóru þangað inn í leyfis­leysi. Sveitar­stjórinn segir það skýrt að það sé óheimilt að fara í laugina eftir lokun og þetta sé ekki eitthvað sem menn eiga að gera.

Selárlaug
Sel­ár­laug Eins og sjá má á myndum er sund­laugin afgirt til þess að afmarka svæðið. Mynd: Af vef Vopnafjarðar

„Ég hef ekki fengið neinar upplýsingar um að mönnum hafi verið veittar heimildir,“ segir Björn Ingimarsson, starfandi sveitar­stjóri Vopna­fjarðar­hrepps, spurður út í umdeilda sundferð þingmanna sem RÚV greindi frá fyrir helgi. Þing­mennirnir sögðust hafa fengið leyfi fyrir ferðinni. 

Fimm þingmenn munu hafa farið í Selárlaug eftir lokun og eru þeir sagðir vera Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknar­flokksins, Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður Miðflokksins, Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar­flokksins, og Jens Garðar Helgason, vara­formaður Sjálfstæðis­flokksins.

Hugmyndin kviknaði yfir kvöldverði

Hópurinn fór í sund í kjördæma­vikunni en hugmyndin kviknaði yfir kvöld­verði á hótelinu Fossgerði ásamt fulltrúum úr sveitar­stjórn Vopna­fjarðar­hrepps eftir kynningu frá Six Rivers, fyrirtæki Jims Ratcliffe.

„Ég hef ekki fengið neinar upp­lýs­ingar um að mönnum hafi verið veittar heim­ildir“
Björn Ingi­mars­son
starf­andi sveit­ar­stjóri Vopna­fjarð­ar­hrepps

Þórarinn Ingi, þingmaður Framsóknar­flokksins, sagði í samtali við RÚV að sveitar­stjórnar­fulltrúi hefði gefið leyfi fyrir sund­ferðinni og …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár