Björn Ólafur Har­alds­son Mynd: Golli

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu

Viðbragðs­aðilar héldu að Björn Ólafur Haraldsson væri útúr­dópaður þegar hann lá á gólfinu með blæðingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkrunar­fræðinámi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leiðrétta mistök ófaglærðs starfs­fólks á heilbrigðis­stofnunum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterkari til baka.

Björn Ólafur Haraldsson hafði lokið tveimur árum af hjúkrunar­fræðinámi þegar hann hneig niður á heimili sínu 14. júlí í fyrra. Hann segist aldrei hafa lært sérstak­lega um sjaldgæfar æðaflækjur í náminu. En einhvern veginn vissi hann á þessu augna­bliki hvað hann væri að upplifa.

„Ég hélt fyrst að þetta væri mígreni en fattaði að ég hefði aldrei fengið mígreni áður svo það gæti ekki verið,“ segir Björn Ólafur, sem var 21 árs gamall þegar áfallið reið yfir. „Svo var ég með jafnvægis­truflanir og fattaði þá strax hvað þetta var. Ég hafði farið fram til að taka paratabs því fyrst hélt ég að þetta væri bara haus­verkur. En síminn minn var inni í svefn­herbergi svo ég komst ekki til baka að hringja þegar ég kveikti á þessu. Ég datt á leiðinni og reyndi að standa upp en var með minni mátt í annarri hliðinni og gat það ekki.“

Björn …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífið á Grensás

ViðtalLífið á Grensás

„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“

Yfir­læknir og deildar­stjóri á Grensás­deild segja ungt fólk mæta fjölda áskorana eftir útskrift af deildinni. Dæmi séu um að ungt fólk sé sent á elli­heimili eða bíði í lengri tíma eftir þjónustu. Heila­skaðar hjá ungu fólki geta reynt á maka, fjöl­skyldur og nærsam­fé­lagið en gefandi sé að sjá fólk halda aftur út í lífið eftir vel heppnaða endur­hæfingu.

12 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár