Heilbrigðisráðuneytið hefur þrýst á Kötlu Guðnadóttur, 24 ára, að velja sér hjúkrunarheimili fyrir aldraða til að flytja á tímabundið. Formaður ÖBÍ segir mál hennar vera eitt það fyrsta sem reyni á nýlögfestan Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en í honum og lögum segir að fatlað fólk eigi rétt á að velja sér búsetustað.
Heimildin greindi frá máli Kötlu í síðasta tölublaði en 28. október 2024, þegar hún var 22 ára gömul, lenti hún í bílslysi á Reykjanesbraut á leið í vinnu í álverinu í Straumsvík. Hún er nú með mesta mænuskaða sem nokkur hefur lifað af á Íslandi, lömuð fyrir neðan háls og þarf öndunarvél og næringu í gegnum slöngu. Katla hefur verið á Grensásdeild síðan vorið 2025 en að mati heilbrigðisstarfsmanna var tilefni til að útskrifa hana þaðan fyrir um ári síðan.
…Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir (1)