Formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins og Birgir Þórarinsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, funduðu með bandarískri hugveitu fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, Mike Pence, um miðjan september síðastliðinn.
Með þeim til halds og trausts var Zachary Freeman, sem hefur vakið athygli fyrir störf sín sem umboðsmaður breska þingmannsins Nigel Farage í Bandaríkjunum. Zachary hefur séð um að leiða saman þingforystu Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins við pólitískar hugveitur í Bandaríkjunum, en Miðflokkurinn hitti meðal annars forsvarsfólk Heritage Foundation á síðasta ári að undirlagi Zachary Freeman. Sú hugveita er afar umdeild út af höfuðplaggi sínu, Project 2025, og þjóðernissinnuðum viðhorfum. Veitan þykir sérstaklega höll undir sjónarmið forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.

Fyrrnefndur Zachary komst í fréttirnar í Bretlandi á síðasta ári þegar í ljós kom að félag hans, Imperial Independent Media (IMM), greiddi Farage um 26 …




















































Ekki er minnst á að verið sé að afsala sér fullrétti eða sjálfstæði eins og hamrað var ótæpilega á í hræðsluáróðri gegn Evrópusambandinu. Þeir vildu vara þjóðina við að afsala sér fullveldi og sjálfstæði til Evrópusambandsins þó svo að ekkert land hefur fram að þessu þurft að sjá eftir öðru hvað þá hvoru tveggja.
Evrópusambandið byggist á mjög víðtæku samstarfi allra aðildarþjóða þar sem mannréttindi og borgaraleg réttindi eru höfð í fyrirrúmi.
Harðsvíraðir bandarískir hagsmunaaðilar munu eiga auðvelt með að leggja undir sig Ísland fari fram eins og virist vera í herbúðum íhaldsmanna.
Fyllsta ástæða er að líta á þessa viðleitni íslenska íhaldsins með vaxandi tortryggni.