Friðarverðlaunahafi Nóbels er með skilaboð til Trumps

Banda­ríkin vilja rífa niður Alþjóð­lega saka­mála­dóm­stól­inn. Ísraelar líkja fyrr­ver­andi dóm­ara við dóm­stól­inn, sem hlaut frið­ar­verð­laun Nóbels, við áróð­urs­meist­ara nas­ista. Hún varar við hætt­unni.

Friðarverðlaunahafi Nóbels er með skilaboð til Trumps
Frið­ar­verð­launa­hafi Nóbels Sama dag og til­kynnt var um að Navanethem „Navi“ Pillay, fyrr­ver­andi dóm­ari við Alþjóða­lega saka­mála­dóm­stól­inn, yrði sæmd frið­ar­verð­launum Nóbels til­kynntu Banda­ríkin um refsi­að­gerðir sínar gegn dóm­stólnum. Mynd: FABRICE COFFRINI / AFP

Navi Pillay, frið­ar­verð­launa­hafi Nóbels, gagn­rýndi í dag „ólög­legar“ refsi­að­gerðir Donalds Trumps gegn Alþjóð­lega saka­mála­dóm­stólnum. Hún sagði Banda­ríkja­for­seta þurfa kennslu í alþjóða­lögum.

Í við­tali við AFP sagði Pillay það heldur ekki til­viljun að Banda­ríkin hefðu til­kynnt refsi­að­gerð­irnar gegn dóm­stólnum aðeins nokkrum klukku­stundum eftir að til­kynnt var um Nóbels­verð­laun hennar. Það væru „við­brögð við því að Trump for­seti hlaut ekki verð­launin“.

Þegar hin 85 ára gamla Pillay, sem er dóm­ari, var spurð hvaða skila­boð hún hefði til Trumps svar­aði hún AFP: „Kallaðu til lög­fræði­lega ráð­gjafa þína og láttu þá útskýra fyrir þér hvað alþjóða­lög eru.“

„Hann ætti að kalla til ráð­gjafa sína og láta þá útskýra fyrir sér hvers vegna við segjum að það sé ólög­legt af honum að hafa afskipti af óháðum alþjóð­legum dóm­stóli.“

Á föstu­dag til­kynntu Banda­ríkin refsi­að­gerðir gegn Alþjóð­lega saka­mála­dóm­stólnum sem miða að því að lama dag­legan rekstur hans. Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, hafði fundað með Þorgerði Katrínu …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár