Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi

For­eldrar írskrar stúlku sem lést í bílslysi á Íslandi í lok sum­ars eru í senn þakk­lát Íslandi og sorg­mædd yfir að hún lést langt fyrir aldur fram. Þau eiga þó erfitt með að fall­ast á að hún hafi lát­ist í slysi, þar sem vís­bend­ingar eru um að ekið hafi verið á yfir 200 kíló­metra hraða í banaslysi dóttur þeirra.

Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
Reykja­nes­viti Samantha Large, móðir Hönnu Jane, fékk mál­verk af Reykja­nes­vita síð­ast þegar hún var á land­inu. Það var upp­á­halds­staður Hönnuh Jane. Mynd: Golli

Hannah Jane Large kom til Íslands af tveimur ástæðum. Í sum­ar­fríi á Spáni árið 2025 varð hún ást­fangin af ungum íslenskum pilti. Mánuði eftir að þau hitt­ust fyrst heim­sótti hún hann til Íslands og hreifst þá af landi og þjóð. Hún hét því að flytja til Íslands árið sem hún yrði átján ára og hefja þar nýtt líf.

Hin ástæðan var að henni hafði aldrei liðið vel í heima­landi sínu, Írlandi. Þar glímdi hún við van­líðan og heilsu­vanda og þurfti oft að leggj­ast inn á sjúkra­hús á æsku­ár­unum. Á Íslandi leið henni betur og virt­ist loks heilsu­hraust. Hún fann lífs­gleð­ina á ný og, varð ást­fangin. Hannah öðl­að­ist aukið hug­rekki og stefndi á nám við Háskóla Íslands. For­eldrar hennar, Samantha og Gregory Large, áttu erfitt með að trúa breyt­ing­unni á dóttur sinni. Á Írlandi hafði hún átt erfitt, en á Íslandi var hún orðin ævin­týra­gjörn, félags­lynd og virt­ist ótta­laus.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár