Bandarískir erindrekar komu til Rússlands í morgun til fundar við Vladimír Pútín forseta, í kjölfar viðræðna um stríðið í Úkraínu sem fram fóru í Abú Dabí. Bæði bandarísk og úkraínsk stjórnvöld telja að nú kunni að vera tækifæri til að ná árangri í viðleitni til að binda enda á mannskæðustu átök í Evrópu frá síðari heimsstyrjöld.
Erindrekarnir, Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, og kaupsýslumaðurinn Steve Witkoff, munu fljúga til Dyflinnar að loknum fundinum með Pútín. Þar munu þeir gera Volodimír Selenskí Úkraínuforseta grein fyrir niðurstöðum fundarins, en hann er staddur í írsku höfuðborginni til viðræðna við leiðtoga Evrópuríkja.
„Býð Steve og Jared velkomna til Moskvu,“ skrifaði Kirill Dmitriev, sérstakur fulltrúi Pútíns, á samfélagsmiðilinn X og birti myndskeið af komu þeirra á Vnúkóvó-flugvöll í Moskvu.
Kushner sagði að á fundinum með Pútín yrði farið yfir það sem rætt hefði verið í Abú Dabí undanfarna tvo daga og …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir