Demókratinn Scott Colom hefur óvænt unnið kosningu til öldungadeildar Bandaríkjaþings í Mississippi, þar sem íhaldsmenn hafa lengi verið ráðandi. Bandarískir fjölmiðlar spáðu honum sigri í gær. Hann verður fyrsti þeldökki þingmaðurinn sem Mississippi kýs í öldungadeildina í meira en 140 ár.
Colom, 43 ára saksóknari, hafði betur gegn sitjandi öldungadeildarþingmanni Repúblikanaflokksins, Cindy Hyde-Smith. Sigurinn er ef til vill óvæntustu úrslitin í þingkosningum þar sem demókratar unnu stórsigur á repúblikönum og endurheimtu meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings.
Í hátíðlegri ræðu, þar sem bænin var í fyrirrúmi, minntist Colom langrar sögu baráttu þeldökkra í Mississippi og trúar þeirra á framfarir.
„Mississippi, bænir okkar hafa oft breytt gangi sögunnar,“ sagði Colom við fagnandi stuðningsmenn sína í Jackson í gærkvöld. „Guð vildi ekki að við næðum þessu auðveldlega. Hann vildi að við næðum þessu að hætti Mississippi.“
Sigur Coloms í suðurríkjunum gerir ósigur Donalds Trumps forseta enn sárari. Kjósendur …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

















































Athugasemdir