Áslaug Pálmadóttir Thorlacius er æskuvinkona Emblu Arnars Katrínardóttur úr Skerjafirði. Síðustu fimm ár hefur hugurinn oft leitað aftur til sunnudagsins 6. júní 2021. Þetta var síðasti dagurinn sem Embla lifði, en hún glímdi við veikindi sem voru þess eðlis að fáir áttuðu sig á alvarleikanum. Þegar foreldrar hennar reyndu að kalla eftir hjálp tók langan tíma að fá áheyrn og jafnvel þá skorti víða upp á skilning.
Síðasti dagurinn
Þennan dag vörðu þær Áslaug og Embla öllum deginum saman. Áslaug var að æfa glímu, en eftir æfingu fór hún að hitta vinkonu sína. Þær horfðu á Anne with an E áður en þær ákváðu að fara út. „Við áttum einn þátt eftir.“ Þær fóru í göngutúr og Embla splæsti í ís. „Þetta var einhvern veginn venjulegur dagur. Við vorum bara að hafa það gaman saman.“
Að kvöldi fóru þær út að borða á Horninu ásamt tveimur vinum þeirra og Öglu, …












































Athugasemdir