Ung kona sem flutti til Íslands frá Palestínu var gerð að andliti þiggjenda fjárhagsaðstoðar frá Reykjavíkurborg í umfjöllun Morgunblaðsins í gær. Í frétt Morgunblaðsins sagði frá því að rúmlega helmingur þeirra sem þáðu fjárhagsaðstoð frá borginni væri „af erlendu bergi brotinn og flestir frá Úkraínu“.
Morgunblaðið deildi hins vegar fréttinni með mynd af starfsmanni leikskóla í Reykjavík, sem vill svo til að er erlend kona. Myndin var tekin á mótmælum gegn þjóðarmorði á hendur Palestínumönnum af hálfu Ísraels.

Konan, Saraa Almasri, segir í viðtali við fréttavefinn Mannlíf að myndbirtingin hafi verið niðurlægjandi. „Það var mjög sárt og niðurlægjandi að sjá ljósmynd af mér notaða sem aðalmynd í frétt Morgunblaðsins, þrátt fyrir að myndin hefði ekkert með efni fréttarinnar að gera,“ segir hún.
Þar kveðst hún vera vinnusöm kona sem leggi metnað sinn í starf og sjálfstæði. Hún hafi starfað á leikskóla í þrjú ár. Þannig eigi myndbirtingin með fréttinni „ekkert skylt við mig eða mitt líf,“ segir konan við Mannlíf.
Margir gagnrýndu myndbirtinguna með frétt Morgunblaðsins, sem birt var upphaflega í fimmtudagsblaði þess sem frídreift er inn á heimili á höfuðborgarsvæðinu.
„Þetta er eitt það ljótasta sem ég hef séð í fréttum á Íslandi,“ sagði fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason á Facebook. „Þarna er fjallað um fólk af erlendum uppruna sem þiggur aðstoð frá Reykjavíkurborg. Það fólk kemur frá ýmsum þjóðum. En með fréttinni er af einhverri ástæðu birt mynd af konu sem ég hef leitað mér upplýsinga um. Mér er tjáð að hún sé einstæð móðir, hörkudugleg, vinni sín störf af trúmennsku og hafi náð góðum tökum á íslensku. Hvað vakir fyrir mönnum að birta svona?“
Morgunblaðið skipti út myndinni af konunni í frétt sinni á mbl.is fyrir mynd af Ráðhúsi Reykjavíkur. Í prentaðri útgáfu sem dreift var inn á heimili borgarbúa er hins vegar Saraa enn andlit þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð frá borginni, þrátt fyrir að vera launaður starfsmaður á leikskóla.














































Athugasemdir