Neitað um greiðslu Stjórn Sorpu ákvað í októ­ber í fyrra að senda fernur aftur í brennslu í stað end­ur­vinnslu, eftir að Úrvinnslu­sjóður neit­aði að greiða end­ur­vinnslu­kostn­að­inn. Mynd: Golli

Fernurnar brenna áfram þrátt fyrir loforð um annað

Sorpa hætti að senda fernur til end­ur­vinnslu eftir að Úrvinnslu­sjóður hafn­aði því að greiða kostn­að­inn. Ráðherra vill þó að almenn­ingur haldi áfram að flokka þær með pappír.

Upplestur fyrir áskrifendur 17:46 · Gervigreind les með rödd Nonna.

Ákveðið hefur verið að senda íslenskar fernur aftur í brennslu í stað end­ur­vinnslu, þremur árum eftir að stjórn­völd, Úrvinnslu­sjóður og Sorpa lof­uðu að tryggja end­ur­vinnslu þeirra.

Þrátt fyrir það telur Jóhann Páll Jóhanns­son, núver­andi umhverf­is­ráð­herra, mik­il­vægt að almenn­ingur haldi áfram að flokka fernur með pappír og pappa. Hann bendir á að bland­aður úrgangur sé urð­aður í sumum sveit­ar­fé­lögum og að brennsla með orku­nýt­ingu sé skárri kostur en urðun.

Sumarið 2023 greindi Heim­ildin frá því að lang­flestar fernur sem flokk­aðar voru á Íslandi end­uðu í brennslu í sem­ents­verk­smiðjum í Evrópu. Umfjöll­unin varð til þess að Sorpa baðst afsök­unar og Mjólk­ur­sam­salan krafð­ist réttrar með­ferðar á umbúðum sínum.

Í kjöl­far fundar með þáver­andi umhverf­is­ráð­herra, Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, lof­uðu sjóð­ur­inn og Sorpa að tryggja að fern­urnar yrðu í raun end­ur­unnar. Öllum þeim tug­millj­óna ferna sem Íslend­ingar skola, brjóta saman og flokka sam­visku­sam­lega árlega átti að senda til end­ur­vinnslu, koma þeim í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurvinnsla á Íslandi

Mest lesið undanfarið ár