Kvika banki hagnaðist um 1,34 milljarða króna á tímabilinu frá júlí og út september. Það er tæplega níu prósentum minna en á sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn byggist á vaxtatekjum af útlánum á sama tíma og tekjur af þóknunum hafa dregist saman. Bankinn hefur stækkað lánasafn sitt verulega á árinu en virðisrýrnun útlána hefur aukist.
Hreinar vaxtatekjur Kviku námu rúmum þremur milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi. Það er sú fjárhæð sem bankinn hafði eftir af vaxtatekjum sínum þegar búið var að draga frá vaxtagjöld, meðal annars af innlánum viðskiptavina og annarri fjármögnun.
1.340 milljónir
Vaxtatekjurnar jukust um 99 milljónir króna, eða 3,4 prósent, frá sama tímabili í fyrra. Vöxturinn skýrist fyrst og fremst af auknum útlánum, en þau höfðu aukist um 27 milljarða króna, eða 13,2 prósent, frá …












































Athugasemdir