Þegar Boy George steig fram á þéttsetnum leikvangi í Tel Avív brutust út fagnaðarlæti. Þau voru ekki aðeins til marks um viðvarandi vinsældir söngvarans, sem er 65 ára, heldur einnig gleði Ísraela yfir því að alþjóðleg poppstjarna skyldi vilja koma fram í Ísrael, sem er sífellt einangraðra.
Hér og þar í áhorfendaskaranum sáust ísraelskir fánar þegar hinn litríki söngvari Culture Club, sem sló í gegn með laginu karma chameleon árið 1983, steig á svið í pallíettujakka í gær. Uppselt var á tónleikana og hann heilsaði einfaldlega með orðinu „Shalom!“
Breski söngvarinn er einn fárra alþjóðlegra listamanna sem hafa ekki látið undan kröfum um menningarsniðgöngu á Ísrael. Þær hafa orðið háværari vegna hernaðaraðgerða Ísraels á Gasa eftir árás Hamas 7. október 2023.
„Í menningarlegu tilliti er hann það stórkostlegasta sem hefur komið fyrir okkur,“ sagði Nachum, sem hefur verið aðdáandi Boy George í meira en 40 ár, við …



















































Athugasemdir