ESB hyggst kenna börnum á gervigreind

Fram­kvæmda­stjórn ESB stefnir að því að inn­leiða vottun í gervi­greind­ar­læsi fyrir 15 ára nem­endur skóla­árið 2027–2028.

ESB hyggst kenna börnum á gervigreind
Síma­notkun Fram­kvæmda­stjórn ESB vinnur einnig að lög­gjöf sem tak­markar aðgang ungra ung­linga að sam­fé­lags­miðlum. Mynd: Unsplash/Robin Worrall

Evr­ópu­sam­bandið lýsti því yfir í dag að það hygð­ist prófa vottun í „gervi­greind­ar­læsi“ fyrir skóla­börn. Hún er liður í við­leitni sam­bands­ins til að bregð­ast við áhrifum þess­arar ört vax­andi tækni á menntun.

„Hún mun hjálpa ungum nem­endum að skilja hvernig gervi­greind virkar, sann­reyna það sem hún segir þeim, koma auga á til­raunir til að hafa áhrif á þau og vita hvenær á að slökkva á henni,“ sagði Roxana Minzatu, vara­for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins.

Fram­kvæmda­stjórnin sagði að stefnt væri að því að inn­leiða nýju vott­un­ina fyrir 15 ára nem­endur skóla­árið 2027–2028.

Kennarar og nem­endur um allan heim glíma nú við áhrif gervi­greindar í skóla­stofum.

ESB ræður ekki mennta­stefnu aðild­ar­ríkj­anna 27, en styður þegar verk­efni sem kanna hvernig nýta megi gervi­greind á öruggan hátt við kennslu barna.

Á sama tíma vinnur fram­kvæmda­stjórnin að lög­gjöf sem tak­markar aðgang ungra ung­linga að sam­fé­lags­miðlum.

Minzatu sagði að þessar tvær …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurnýjun Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár