Rússar vara Armena við ESB-þreifingum þeirra

Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti krefst þess að Armenar haldi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu áður en lengra er haldið.

Rússar vara Armena við ESB-þreifingum þeirra
Armenski for­sæt­is­ráð­herr­ann Nikol Pas­hinyan hefur horft til Evrópu í leit að banda­mönnum fyrir Armeníu. Mynd: AFP

Nikol Pas­hinyan, for­sæt­is­ráð­herra Armeníu, hafn­aði í dag kröfu Vla­dimirs Pútíns, leið­toga Rúss­lands, um að stjórn­völd héldu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um inn­göngu í ESB, í miðjum þrýst­ingi frá Moskvu viku fyrir þing­kosn­ingar.

Armenía hefur á und­an­förnum árum leitað að öðrum banda­mönnum, í ósætti yfir því að Rússar hafi ekki varið landið í deilum við nágranna­ríkið Aserbaídsjan. Afstaða lands­ins hefur reitt Rússa til reiði.

Í síð­ustu viku gagn­rýndi Pútín aukna sam­þætt­ingu Armeníu að Evr­ópu­sam­band­inu og kall­aði eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu „eins fljótt og auðið er“ og sagði ekki fara saman að eiga aðild að bæði ESB og Efna­hags­banda­lagi Evrasíu (EEU) undir for­ystu Rúss­lands.

Pas­hinyan sagði í mynd­bandsávarpi á Facebook að „það væri órök­rétt að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu“ þar til valið á milli þess­ara tveggja banda­laga „verður óum­flýj­an­legt, þar til Armenía hefur form­lega sótt um aðild að ESB eða er komin nálægt því að fá stöðu umsókn­ar­ríkis.“

Á laug­ar­dag­inn köll­uðu Rússar sendi­herra sinn í Armeníu heim til „sam­ráðs“ vegna vax­andi tengsla Armeníu við ESB.

Pútín sagði dag­inn áður að „úkra­ínska atburða­rásin“ hafi byrjað með til­raun Kænu­garðs til að ganga í ESB og var­aði Armeníu við því að snúa sér að Brussel.

Pas­hinyan sagði að sam­skipti Armeníu og Rúss­lands „séu í umbreyt­ing­ar­ferli“.

„Við erum að byggja upp ný sam­skipti við Rússland og ég er full­viss um að okkur muni takast það, meðal ann­ars vegna þess að sam­skipti okkar við Rússland eru opin og ein­læg,“ sagði hann.

Rússnesk yfir­völd upp­lýstu í dag að Pútín og Pas­hinyan hefðu rætt saman í síma og sögðu aðeins að þeir hefðu rætt leið­toga­fund Evr­asíu­banda­lags­ins í Kasakstan í síð­ustu viku, þar sem Pútín hafði sett fram við­var­an­irnar, án þess að gefa frek­ari upp­lýs­ingar.

Rúss­lands­stjórn sagði einnig að Pútín hefði borið Pas­hinyan afmælis­kveðjur.

Armenía er enn form­lega í banda­lagi við Rússland og er aðili að Efna­hags­banda­lagi Evrasíu (EEU).

En sam­skiptin hafa versnað veru­lega frá því að Aserbaídsjan tók yfir hið umdeilda Karabakh-svæði með hern­að­ar­að­gerðum árið 2023, sem hratt af stað land­flótta Armena þaðan.

Armenar hafa sakað Rússland um að hafa ekki varið Armeníu og frysti þátt­töku sína í örygg­is­sam­starfi undir for­ystu Rússa árið 2024.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurnýjun Evrópu

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár