Um leið og ríkisstjórnin kallaði eftir samráði um lagagerð sem myndi koma á innviða- og náttúrugjaldi við Þingvelli, Geysi og Gullfoss, hófu landeigendur nálægt Gullfossi að rukka fyrir bílastæði við veitingastað sinn, sem ferðalangar hafa notað til að bera fossinn augum. Eigandinn segir tímasetninguna „tilviljun“.
Gullfosskaffi ehf. byggði upp bílastæðið ofan við Gullfoss á einkalandi við samnefndan veitingastað sinn. Greiddar eru 1.080 krónur fyrir fólksbíla við Gullfosskaffi, en stórar rútur greiða 8.700 krónur.
Hingað til hefur rekstur Gullfosskaffi notið sívaxandi velgengni og hefur verið mikill hagnaður af viðskiptum við hluta þeirra 1,5 milljóna manna sem sjá Gullfoss á hverju ári. Í fyrra var hagnaður eftir skatta, án rukkunar bílastæðagjalds, 375 milljónir króna, svipað og tvö ár á undan.
Sjóðir safnast upp
Uppsafnaður hagnaður Gullfosskaffi frá og með árinu 2009 er ríflega 3,1 milljarður króna að núvirði frá árinu 2009 og hefur hann farið …

































Athugasemdir