Kjósendur í tugum bandarískra borga samþykktu takmarkanir á gagnaverum eða bönnuðu þau með öllu í kosningum á þriðjudag. Úrslitin eru með skýrustu merkjum þess að vaxandi óánægja með uppgang gervigreindar nái þvert yfir pólitískar línur.
„Það skipti engu hvort fólk var demókratar eða repúblikanar,“ sagði Alisha Lange, bóndi frá Piqua í Ohio. „Fólk vill fá bæinn sinn aftur.“
Hún var ein af drifkröftunum í grasrótarsamtökunum Save Piqua, sem beittu sér fyrir banni við gagnaverum með meira en 25 megavatta afkastagetu. Það útilokar í reynd allar stórframkvæmdir af þessu tagi.
Bannið var samþykkt í atkvæðagreiðslu á þriðjudag og setur nú byggingu gagnavers sem Meta hefur áformað í uppnám. Verðmæti þess er metið á meira en milljarð dollara, eða rúmlega 121 milljarð króna, og hafði framkvæmdin þegar verið samþykkt.
Lange, sem er 42 ára, grét af gleði þegar hún frétti að tveir þriðju kjósenda hefðu samþykkt tillöguna.
…


















































Athugasemdir