Bandaríkjamenn vilja hægja á uppbyggingu gagnavera: „Við erum ekki til sölu“

Kjós­endur í tugum banda­rískra borga sam­þykktu bann eða hertar reglur um gagna­ver í kosn­ingum á þriðju­dag.

Mótmælt
Mótmælt Gagnaver spretta upp víða um Banda­ríkin til að svara eft­ir­spurn eftir reikni­afli fyrir gervi­greind. Mörgum þeirra hefur verið kröft­ug­lega mót­mælt. Mynd: STEPHANIE KEITH / Getty Images via AFP

Kjós­endur í tugum banda­rískra borga sam­þykktu tak­mark­anir á gagna­verum eða bönn­uðu þau með öllu í kosn­ingum á þriðju­dag. Úrslitin eru með skýr­ustu merkjum þess að vax­andi óánægja með upp­gang gervi­greindar nái þvert yfir póli­tískar línur.

„Það skipti engu hvort fólk var demókratar eða repúblikanar,“ sagði Alisha Lange, bóndi frá Piqua í Ohio. „Fólk vill fá bæinn sinn aftur.“

Hún var ein af drif­kröft­unum í gras­rót­ar­sam­tök­unum Save Piqua, sem beittu sér fyrir banni við gagna­verum með meira en 25 mega­vatta afkasta­getu. Það úti­lokar í reynd allar stór­fram­kvæmdir af þessu tagi.

Bannið var sam­þykkt í atkvæða­greiðslu á þriðju­dag og setur nú bygg­ingu gagna­vers sem Meta hefur áformað í upp­nám. Verðmæti þess er metið á meira en millj­arð doll­ara, eða rúm­lega 121 millj­arð króna, og hafði fram­kvæmdin þegar verið sam­þykkt.

Lange, sem er 42 ára, grét af gleði þegar hún frétti að tveir þriðju kjós­enda hefðu sam­þykkt til­lög­una.

…
Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Jafnvel í mekka Kapítalismans getur fólk tekið sönsum, þá er nú fokið í flest skjól. Þetta er svipað dæmisögunni um manninn sem skeit á húddið.
    0
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Við erum aldeilis ekki þar 🤑
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár