Vilja að Katla fari á elliheimili

Heil­brigð­is­ráðu­neytið hefur þrýst á að Katla Guðna­dóttir, 24 ára gömul, velji sér hjúkr­un­ar­heim­ili til að flytja á tíma­bundið. Formaður ÖBÍ segir slíkar inn­lagnir ungs fólks sjaldn­ast verða tíma­bundnar. Katla hefur verið ári lengur á Grens­ás­deild en heil­brigð­is­starfs­fólk taldi þurfa og vill flytja heim til sín.

Vilja að Katla fari á elliheimili
Katla Guðna­dóttir Katla hefur búið á Grensás síðan vorið 2025 en hefur óskað eftir því að fá þá aðstoð sem hún þarf heima hjá sér. Mynd: Golli

Heil­brigð­is­ráðu­neytið hefur þrýst á Kötlu Guðna­dóttur, 24 ára, að velja sér hjúkr­un­ar­heim­ili fyrir aldr­aða til að flytja á tíma­bundið. Formaður ÖBÍ segir mál hennar vera eitt það fyrsta sem reyni á nýlög­festan Samning Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks en í honum og lögum segir að fatlað fólk eigi rétt á að velja sér búsetu­stað.

Heim­ildin greindi frá máli Kötlu í síð­asta tölu­blaði en 28. októ­ber 2024, þegar hún var 22 ára gömul, lenti hún í bílslysi á Reykja­nes­braut á leið í vinnu í álver­inu í Straums­vík. Hún er nú með mesta mænu­skaða sem nokkur hefur lifað af á Íslandi, lömuð fyrir neðan háls og þarf önd­un­ar­vél og nær­ingu í gegnum slöngu. Katla hefur verið á Grens­ás­deild síðan vorið 2025 en að mati heil­brigð­is­starfs­manna var til­efni til að útskrifa hana þaðan fyrir um ári síðan.

…
Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásta Jensen skrifaði
    Það er lágmark að hún búi þar sem henni líður best. Það á ekki að lifa en standa svo ekki við það. Hjúkrunarheimili er fyrir gamalt fólk
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífið á Grensás

ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

10 mín. lestur

ViðtalLífið á Grensás

„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“

Yfir­læknir og deild­ar­stjóri á Grens­ás­deild segja ungt fólk mæta fjölda áskor­ana eftir útskrift af deild­inni. Dæmi séu um að ungt fólk sé sent á elli­heim­ili eða bíði í lengri tíma eftir þjón­ustu. Heilaskaðar hjá ungu fólki geta reynt á maka, fjöl­skyldur og nær­sam­fé­lagið en gef­andi sé að sjá fólk halda aftur út í lífið eftir vel heppn­aða end­ur­hæf­ingu.

12 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár