Á fjórða tug vitna að minnsta kosti munu mæta í Héraðsdóm Reykjaness á miðvikudaginn í næstu viku vegna réttarhalda yfir Írisi Helgu Jónatansdóttur sem hefur verið ákærð fyrir umsáturseinelti og margvísleg brot því tengdu. Aðalmeðferðin hefst næsta mánudag og mun standa yfir í að minnsta kosti fjóra daga samkvæmt áætlun héraðsdóms. Mögulegt er að vitnalisti gæti breyst, en áætlað er nú að 35 vitni verði leidd fyrir dómara úr ólíkum áttum.
Íris Helga er ákærð fyrir að hafa að mestu hrellt þrjá menn, en einnig fyrir rangar sakargiftir, skjalafals, hótanir, ærumeiðandi aðdróttanir og barnaverndarlagabrot. Brotin beinast alls gegn níu brotaþolum, fullorðnum einstaklingum og börnum þeirra. Ákæruskjalið taldi 17 blaðsíður og voru ákæruliðirnir 68 talsins.
Þar eru listuð upp fjölmörg ólík afbrot, allt frá röngum sakargiftum, svo sem …


















































Athugasemdir