Þetta er sú Evrópa sem Trump og Pútín vilja

Rússnesk og banda­rísk stjórn­völd sam­ein­ast um að styðja til valda stjórn­mála­mann sem þykir grafa undan lýð­ræð­inu.

Þetta er sú Evrópa sem Trump og Pútín vilja
Vin­áttu­dagur Vara­for­seti Banda­ríkj­anna, JD Vance, og ung­verski for­sæt­is­ráð­herr­ann, Viktor Orban, standa saman á svið­inu í Búdepest í gær á svoköll­uðum Vin­áttu­degi. Mynd: AFP

JD Vance, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, lýsti í gær yfir stuðn­ingi við Viktor Orban, þjóð­ern­is­sinn­aðan for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands, fyrir þing­kosn­ing­arnar um helg­ina þar sem hart er barist, og sak­aði Evr­ópu­sam­bandið um „erlend afskipti af kosn­ingum“, þrátt fyrir að hann sé sjálfur sýni­lega full­trúi erlends valds í kosn­inga­bar­átt­unni.

Orban, sem er sá leið­togi ESB sem hefur nán­ust tengsl við bæði Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, og Vladimír Pútín, for­seta Rúss­lands, stendur frammi fyrir for­dæma­lausri áskorun við 16 ára valda­tíð sína í kosn­ing­unum á sunnu­dag.

Vance er einn harð­asti gagn­rýn­and­inn innan banda­rísku stjórn­ar­innar gagn­vart miðju- og vinstri­s­inn­aðar rík­is­stjórnir í Evrópu og einn af áköf­ustu stuðn­ings­mönnum hægriöfga­flokka í Evrópu.

Þessi 41 árs gamli íhalds­maður fagn­aði Orban sem „fyr­ir­mynd“ fyrir Evrópu í heim­sókn sinni til Búdapest, höf­uð­borgar Ung­verja­lands.

„Ég vildi senda skila­boð til allra, sér­stak­lega skrifræð­isliðs­ins í Brussel,“ sagði hann við blaða­menn á blaða­manna­fundi með Orban og sak­aði Brussel um að hafa afskipti „til að halda ung­versku þjóð­inni niðri“.

Síðar, á fjölda­fundi með Orban í íþrótta­höll, sagði Vance við þús­undir fagn­andi áheyr­enda að hann og Trump snéru „bökum saman“ með ung­verska leið­tog­anum.

Áður en hann flutti ræðu sína var hann með Trump í sím­anum á hátal­ara, sem sagði: „Ég elska þennan Viktor“.

„Hvetjandi“ nærvera Vance

Eszter Molnar, 39 ára lög­fræð­ingur sem var á við­burð­inum með eins árs gam­alli dóttur sinni, sagði heim­sókn Vance „hvetj­andi“ þar sem „gildi hans eru í sam­ræmi við gildi ung­versku rík­is­stjórn­ar­innar“.

„Ég er ánægð með að sam­skipti Ung­verja­lands og Banda­ríkj­anna hafi náð svona góðu stigi,“ sagði hún við AFP.

Adorjan Somogyi, 18 ára nem­andi, sagði heim­sókn­ina mik­il­væga „frá sjón­ar­miði utan­rík­is­stefnu“ en myndi ekki hafa áhrif á marga kjós­endur.

Heimsókn Vance fylgir í kjöl­far heim­sóknar Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, um miðjan febr­úar, sem óskaði ung­verskum banda­manni sínum „vel­gengni“ í kosn­ing­unum 12. apríl.

Orban sagði á blaða­manna­fund­inum fyrr um dag­inn að hann hefði rætt „helstu mál­efni sem vest­ræn sið­menn­ing stendur frammi fyrir“ við Vance, svo sem „fólks­flutn­inga, kynja­hug­mynda­fræði, fjöl­skyldu­stefnu og alþjóð­legt öryggi“.

Hann gagn­rýndi einnig „óvenju gróf og aug­ljós afskipti erlendra leyni­þjón­usta af kosn­inga­ferlum í Ung­verja­landi“.

Áskorun í kosningum

Orban, 62 ára, hefur verið við völd í 16 ár og er náinn stjórn­völdum í Moskvu.

Að sögn sér­fræð­inga hefur Orban notið góðs af leyni­legri aðstoð Rússa til að auka líkur sínar á end­ur­kjöri.

Skoð­ana­kann­anir óháðra stofn­ana spá hins vegar yfir­gnæf­andi sigri Tisza-flokks­ins undir for­ystu hins Evr­ópu­sinn­aða íhalds­manns Peter Magyar.

Á tveimur árum hefur Magyar byggt upp stjórn­ar­and­stöðu­hreyf­ingu sem getur veitt Orban mót­spyrnu.

Stofn­anir sem eru hlið­hollar rík­is­stjórn­inni spá sigri Fidesz-KDNP-banda­lags­ins undir for­ystu Orbans.

Frá því að Trump og rík­is­stjórn hans komust aftur til valda í Banda­ríkj­unum hafa þau snúið frá hefð­bund­inni aðgát sem fyrri banda­rískar rík­is­stjórnir hafa sýnt varð­andi kosn­ingar í erlendum ríkjum.

Þess í stað sýna þau nú ein­dreg­inn stuðn­ing við leið­toga sem þau telja sam­ræm­ast utan­rík­is­stefnu Banda­ríkj­anna.

Thomas Regnier, tals­maður fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, sagði í yfir­lýs­ingu í gær að kosn­ingar væru „ein­vörð­ungu val borg­ar­anna“ og bætti við að „saman séu fram­kvæmda­stjórnin og aðild­ar­ríkin að byggja upp sterk­ari og sjálf­stæð­ari Evrópu.“

Orbán er sér­stak­lega sam­stíga rík­is­stjórn Trumps varð­andi stefnu gegn inn­flytj­endum, sem komst í hámæli í Ung­verja­landi í flótta­manna­krepp­unni fyrir 10 árum. Hann hefur heim­sótt Mar-a-Lago-setur Trumps í Flórída nokkrum sinnum.

Ung­verja­land er enn mjög háð rúss­neskri orku og heldur því fram að það sé nauð­syn­legt til að halda orku­kostn­aði lágum.

Ef Viktor Orban, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands til langs tíma, fer með sigur af hólmi í þing­kosn­ing­unum í þessum mán­uði mun það hafa afleið­ingar langt út fyrir landa­mæri þessa Mið-Evr­ópu­ríkis, að sögn sér­fræð­inga.

Frá því að Orban komst aftur til valda árið 2010 hefur hann ítrekað átt í deilum við Evr­ópu­sam­bandið. Leið­togar Póllands og Írlands for­dæmdu náin tengsl rík­is­stjórnar hans við Moskvu á þriðju­dag og köll­uðu þau „óheilla­væn­leg“ og „við­bjóðs­leg“ eftir nýj­ustu upp­ljóstr­anir um leka sím­tala milli utan­rík­is­ráð­herr­ans Peter Szijjarto og rúss­neska starfs­bróður hans Sergei Lavrov.

Kaja Kallas, æðsti erind­reki ESB í utan­rík­is­málum, var enn harð­orð­ari og sagði: „Evr­ópskir ráð­herrar eiga að vinna fyrir Evrópu, ekki fyrir Rússland“.

Orban – sem er náinn Rúss­landi, Kína og Banda­ríkj­unum undir stjórn Donalds Trump for­seta – hefur reglu­lega lamað utan­rík­is­stefnu ESB með því að beita neit­un­ar­valdi Ung­verja­lands.

Þjóð­ern­is­sinn­inn hefur ítrekað tafið refsi­að­gerðir ESB gegn Rúss­landi vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu og komið í veg fyrir aðstoð til stríðs­hrjáða lands­ins, og jafn­vel skipst á beittum orðum við Kænugarð í kosn­inga­bar­átt­unni.

Ef Orban nær fimmta kjör­tíma­bil­inu í röð þann 12. apríl telja sér­fræð­ingar að hann muni herða tökin enn frekar.

En þegar kosn­inga­bar­áttan er á loka­sprett­inum sýna óháðar skoð­ana­kann­anir að íhalds­sami áskor­and­inn Peter Magyar hefur gott for­skot.

Ef Magyar og flokkur hans, TISZA, vinna er búist við að hann muni bæta sam­skiptin við ESB og losa um millj­arða evra fyrir Ung­verja­land sem Brussel hefur fryst vegna áhyggna af rétt­ar­rík­inu og öðrum málum.

Heimspólitískar kosningar

Annar sigur Orbans „myndi þýða fram­hald á núver­andi stefnu, þar sem Ung­verja­land virkar sem skemmd­ar­vargur, hindrar sam­eig­in­legar evr­ópskar aðgerðir og tak­markar getu ESB til að tala einni röddu,“ sagði Zsuzsanna Vegh frá German Marshall Fund, banda­rískri hug­veitu.

Hún spáði því að hinn 62 ára gamli myndi finna fyrir „auknu sjálfs­trausti“ því hann „nýtur stuðn­ings Trumps“.

En Zoltan Kiszelly, frá hug­veit­unni Szazadveg sem er hlið­holl rík­is­stjórn­inni, sér fyrir sér að á end­anum verði gerð mála­miðlun við ESB.

„Brussel vill ung­versk atkvæði fyrir ein­róma ákvarð­anir, á meðan rík­is­stjórnin vill ESB-fjár­magn til að koma efna­hags­líf­inu aftur á réttan kjöl,“ sagði Kiszelly við AFP.

Hann sagði að Ung­verja­land gæti samið um form­lega „und­an­þágu“ frá ákveðnum ákvörð­unum ESB sem mögu­lega lausn.

En hvor­ugur sér­fræð­ing­ur­inn sér fyrir sér „skil­yrð­is­lausa“ stefnu í þágu ESB eða breyt­ingar á stefnu í inn­flytj­enda­málum ef Magyar vinnur, né að hann yrði ein­dreg­inn stuðn­ings­maður Úkraínu.

Kiszelly sagði að undir stjórn Magyars „myndi ung­verska neit­un­ar­valdið hætta að vera til innan ESB“ og hann myndi ekki and­mæla ESB jafn „dramat­ískt“ og Orban.

„Landið myndi ekki bjóða upp á jafn skarpan val­kost. En það myndi samt reyna að halda aftur af meg­in­straumi Brussel, eins og (for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, Georgia) Meloni og (for­sæt­is­ráð­herra Slóvakíu, Robert) Fico eru að gera,“ bætti hann við.

Áhrif á öfgahægrið

En ósigur Orbans gæti haft afleið­ingar fyrir hug­mynda­fræði­lega bar­áttu langt út fyrir Ung­verja­land.

„Trump myndi missa sinn stærsta tals­mann innan ESB og eng­inn myndi sitja við borðið til að bjóða upp á sömu teg­und af val­kosti, að minnsta kosti um hríð,“ sagði Kiszelly.

Orban er „tákn­ræn per­sóna í alþjóð­legri þjóð­ern­is­sinn­aðri öfga­hægri­hreyf­ingu,“ sagði Andras Biro-Nagy, yfir­maður hug­veit­unnar Policy Solutions.

Ef hann myndi tapa kosn­ing­unum gæti það „haft áhrif á allt þetta tengsla­net,“ sagði Biro-Nagy við AFP.

„Margir leið­togar líta á Orban sem inn­blástur og 16 ára valda­tíð hans er það sem á end­anum veitir honum trú­verð­ug­leika,“ bætti hann við.

Framboð ung­verska for­sæt­is­ráð­herr­ans hefur fengið stuðn­ing frá öðrum harð­línu hægri leið­togum víðs­vegar að úr heim­inum, þar á meðal Trump, Meloni á Ítalíu og Benjamin Net­anyahu frá Ísrael.

Framtíð Ungverjalands

Flestir sér­fræð­ingar telja að sigur Orbans myndi leiða til þess að Ung­verja­land haldi áfram á and­lýð­ræð­is­legri braut.

„Hann gafst greini­lega upp á að inn­leiða umbætur til að tryggja ESB-fjár­magnið og með því er hann far­inn að hunsa opin­skátt lög ESB og jafn­vel dóms­úr­skurði ESB,“ sagði Vegh.

„Ef Orban vinnur getum við búist við frek­ari rót­tækni og aukn­ingu á árás­ar­gjörnum aðgerðum gegn póli­tískum and­stæð­ingum,“ var Biro-Nagy sam­mála.

Hann benti á ræðu sem Orban hélt í febr­úar, þar sem hann hét því að halda áfram aðgerðum sínum gegn „fals­frjálsum félaga­sam­tökum, keyptum blaða­mönnum, dóm­urum (og) stjórn­mála­mönnum“.

Magyar hefur heitið því að fram­kvæma þær umbætur sem kraf­ist er af Ung­verja­landi til að fá aðgang að frystu ESB-fjár­magni.

En hvort honum tak­ist að koma á var­an­legum breyt­ingum veltur á umfangi sig­urs hans, sagði Biro-Nagy.

„Ef TISZA nær tveggja þriðju hluta ofur­meiri­hluta gæti flokk­ur­inn reynt að brjóta niður kerfi Orbáns,“ sem hefur valdið árekstrum milli for­sæt­is­ráð­herr­ans og Brussel vegna spill­ingar og rétt­ar­rík­is­ins.

En naumur sigur myndi aðeins þýða „stjórn­ar­skipti frekar en kerf­is­breyt­ingu“ sem Magyar hefur lofað, að sögn sér­fræð­ings­ins.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KKJ
    Katrin Kinga Jósefsdóttir skrifaði
    Hér er talað um lýðræði ef það er okkar megin, það má ekki hafa aðra skoðun en þessa sem tíðkast hér EU megin. Orban hefur iðulega talað fyrir friðarumleitunum við Rússland en vestrið hefur gefið þeim langt nef, varðandi innanríkismál Ungverjalands eru þau ekki mikið öðruvísi en í Póllandi og víða í Evrópu en Orban þjáist ekki af Rússafobiu og þess vegna þarf EU að koma honum frá, stríð skal heyja hvað sem það kastar !
    -5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurnýjun Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár