Trump boðar afskipti af innanríkismálum Evrópuríkja

Ný þjóðar­ör­ygg­is­stefna Banda­ríkj­anna stað­festir gjör­breytta heims­mynd. Banda­ríkin lýsa „sið­menn­ing­ar­legri eyð­ingu“ Evrópu og ætla að „ýta undir and­stöðu innan Evr­ópu­þjóða við núver­andi stefnu álf­unnar“.

Trump boðar afskipti af innanríkismálum Evrópuríkja

Donald Trump for­seti hefur haft Evrópu í sigt­inu síðan hann hóf sitt annað kjör­tíma­bil í Hvíta hús­inu fyrr á þessu ári.

En í nýrri þjóðar­ör­ygg­is­stefnu sinni – sem birt var um miðja nótt aðfara­nótt föstu­dags – gerði Banda­ríkja­for­seti alls­herj­ar­árás og gagn­rýndi Evrópu harð­lega fyrir að vera ofreglu­vædd, rit­skoðuð álfa sem skorti „sjálfs­traust“ og stæði frammi fyrir „sið­menn­ing­ar­legri útrým­ingu“ vegna inn­flytj­enda. Þá er boðað í stefn­unni að Banda­ríkin muni beita sér fyrir til­teknum stjórn­mála­öflum í Evrópu, sem fylgja svip­aðri stefnu og Trump sjálfur.

„Tímabili fjölda­flutn­inga fólks verður að ljúka,“ sagði í stefnu­skjal­inu.

Í stefn­unni kom skýrt fram að Banda­ríkin undir stjórn Trumps myndu af hörku sækj­ast eftir svip­uðum mark­miðum í Evrópu, í sam­ræmi við stefnu­mál hægriöfga­flokka.

Í óvenju­legu orða­lagi þegar átt er við nána banda­menn sagði í stefn­unni að stjórnin myndi „efla and­stöðu innan Evr­ópu­þjóða gegn núver­andi þróun í Evrópu.“

Trump hót­aði nýlega afleið­ingum ef kjós­endur í Hondúras og Argent­ínu veldu ekki þann fram­bjóð­anda sem hann studdi, en í loft­inu lágu tolla­hækk­anir og nið­ur­fell­ing fjár­stuðn­ings.

Skjalið sem beðið hefur verið eftir, festir í sessi þá sókn sem Trump-stjórnin hóf fyrir mán­uðum gegn Evrópu, sem hann sakar um að nýta sér örlæti Banda­ríkj­anna og axla ekki ábyrgð á eigin afdrifum.

Róttæk breyting

Nýja stefnan, sem markar rót­tæka breyt­ingu frá fyrri stefnu Banda­ríkj­anna, bein­ist meðal ann­ars að evr­ópskum stofn­unum sem „grafa undan póli­tísku frelsi og full­veldi“, inn­flytj­enda­stefnu, „rit­skoðun á tján­ing­ar­frelsi og bæl­ingu á póli­tískri and­stöðu“, hruni fæð­ing­ar­tíðni og tapi á þjóð­ar­vit­und.

„Ef núver­andi þróun heldur áfram verður álfan óþekkj­an­leg eftir 20 ár eða minna,“ segir í skjal­inu.

Auk þess segir: „Stór meiri­hluti Evr­ópu­búa vill frið, en sú ósk skilar sér ekki í stefnu­mótun, að stórum hluta vegna þess að rík­is­stjórnir þeirra grafa undan lýð­ræð­is­legum ferlum.“

Við­brögðin í Evrópu létu ekki á sér standa og Johann Wadephul, utan­rík­is­ráð­herra Þýska­lands, sagði að landið þyrfti ekki á „ráð­gjöf að utan“ að halda.

Skjalið er „óásætt­an­legt og hættu­legt,“ sagði Valerie Hayer frá Frakk­landi, leið­togi miðju­hóps­ins Renew Europe á Evr­ópu­þing­inu, á X.

Að mati Evan Feig­en­baum, fyrr­ver­andi ráð­gjafa tveggja utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna og sér­fræð­ings í mál­efnum Asíu, er „Evr­ópukafli skjals­ins lang­at­hygl­is­verð­astur – og mun meira svo en kafl­arnir um Kína/Asíu.“

Hann „virkar í eðli sínu mun fjand­sam­legri og setur Banda­ríkin í afger­andi and­stöðu við allt Evr­ópu­verk­efnið með þess­ari línu: ‚að ýta undir and­spyrnu gegn núver­andi þróun Evrópu innan evr­ópskra þjóða,‘“ sagði hann í færslu á X.

Pólitískar árásir

Aðeins nokkrum vikum eftir að hafa tekið við emb­ætti olli JD Vance, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, Þjóð­verjum sér­stak­lega og Evr­ópu­búum almennt von­brigðum með ræðu í München þar sem hann hélt því fram að tján­ing­ar­frelsi væri á und­an­haldi í álf­unni og tók þar með undir með öfga­hægri­flokkum eins og AfD í Þýska­landi.

Ný þjóðar­ör­ygg­is­stefna Banda­ríkj­anna, sem vísar til end­ur­reisnar á for­gangi þjóð­ríkja, fellur að þess­ari nálgun.

„Það sem Trump-stjórnin er að gefa í skyn með þess­ari þjóðar­ör­ygg­is­stefnu er að hún vilji sjá allt aðra Evrópu,“ sagði Kristine Berzina, sér­fræð­ingur hjá hug­veit­unni German Marshall Fund.

Hún sagði að það að véfengja lög­mæti evr­ópskra rík­is­stjórna jafn­gilti „veru­legum póli­tískum árásum“ á banda­menn Washington, jafn­vel þótt Trump-stjórnin seg­ist vilja styrkja öryggi Evrópu í ljósi stríðs­ins í Úkraínu.

Kafli stefn­unnar um tján­ing­ar­frelsi í Evrópu er tákn­rænn, þar sem Trump-stjórnin for­dæmir „rit­skoðun á tján­ing­ar­frelsi og bæl­ingu á póli­tískri and­stöðu“ í álf­unni og vísar þar til til­rauna í sumum löndum til að hefta upp­gang öfga­hægri.

Mánuðum saman hafa banda­rískir emb­ætt­is­menn bent á meinta hnignun mann­rétt­inda í Evrópu, þar á meðal í Þýska­landi, Bret­landi og Frakk­landi.

Nýja þjóðar­ör­ygg­is­stefnan nefnir ekki ákveðnar hreyf­ingar eða stjórn­mála­flokka, en sýnir greini­lega vilja Trump-stjórn­ar­innar til að sjá stefnu sína fram­kvæmda í Evrópu, sér­stak­lega þegar kemur að inn­flytj­enda­málum.

Í því sam­bandi hefur Trump ekki farið leynt með hrifn­ingu sína á „vini“ sínum, Viktor Orban, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands, sem er andsnú­inn inn­flytj­endum og rétt­indum hinsegin fólks.

Fjölpóla heimur nýja stefnan

Þjóðar­ör­ygg­is­stefnan útfærir heims­mynd Trumps sem brýtur í bága við við­teknar venjur. Hún setur Rómönsku Ameríku efst á for­gangs­lista Banda­ríkj­anna, sem er mikil stefnu­breyt­ing frá langvar­andi áherslu Banda­ríkj­anna á Asíu til að mæta upp­gangi Kína.

„Í öllu sem við gerum, setjum við Ameríku í fyrsta sæti,“ segir Trump í for­mála að skjal­inu.

Í stefn­unni er horfið frá ára­tuga langri við­leitni til að vera eina stór­veldið og sagt að „Banda­ríkin hafni þeirri mis­heppn­uðu hug­mynd um alheims­yf­ir­ráð fyrir sjálf sig.“

Þar kom fram að Banda­ríkin myndu einnig koma í veg fyrir að önnur stór­veldi, einkum Kína, næðu yfir­ráðum en bætti við: „Þetta þýðir ekki að úthella blóði og sóa fjár­munum til að hefta áhrif allra stórra og með­al­stórra ríkja heims.“

Í stefn­unni var kallað eftir „end­ur­skipu­lagn­ingu á alþjóð­legri hern­að­ar­við­veru okkar til að bregð­ast við brýnum ógnum á okkar heims­hveli,“ og byrjað á fólks­flutn­ingum.

Þing­maður demókrata, Gregory Meeks, sagði að skjalið „hafn­aði ára­tuga langri, gild­is­mið­aðri for­ystu Banda­ríkj­anna í þágu hug­lausrar og prinsipp­lausrar heims­myndar.“

Í stefn­unni var bent á minnk­andi hlut­deild Evrópu í hag­kerfi heims­ins – sem er að mestu leyti afleið­ing af upp­gangi Kína og ann­arra nýmark­aðs­ríkja – og sagt að „sú hnignun blikni í sam­an­burði við raun­veru­lega og mun alvar­legri hættu á sið­menn­ing­ar­legri útrým­ingu.“

„Ef núver­andi þróun heldur áfram verður álfan óþekkj­an­leg eftir 20 ár eða minna.“

Þar sem Trump leit­ast við að binda enda á stríðið í Úkraínu á þann hátt sem lík­lega myndi hygla land­vinn­ingum Rúss­lands, var Evr­ópu­búum í stefn­unni kennt um veik­leika og sagt að Banda­ríkin ættu að ein­beita sér að því að „binda enda á þá ímynd, og koma í veg fyrir þann veru­leika, að NATO sé sífellt stækk­andi banda­lag.“

Uppfærð „Monroe-kenning“

Frá því Trump tók aftur við emb­ætti í jan­úar hefur hann fyr­ir­skipað víð­tækar tak­mark­anir á fólks­flutn­ingum, eftir stjórn­mála­feril sem byggð­ist á því að magna ótta um að hvítur meiri­hluti Banda­ríkj­anna væri að missa stöðu sína.

Í stefn­unni er talað afdrátt­ar­laust um að þrýsta á yfir­ráð Banda­ríkj­anna í Rómönsku Ameríku, þar sem Trump-stjórnin hefur ráð­ist gegn meintum fíkni­efna­smygl­urum á sjó, gripið inn í til að steypa af stóli vinstrisinn­uðum leið­togum, meðal ann­ars í Venes­ú­ela, og reynt að ná yfir­ráðum yfir mik­il­vægum auð­lindum eins og Panama­skurð­inum.

Í stefn­unni var Trump lýst sem þeim sem nútíma­væddi hina tveggja alda gömlu Monroe-kenn­ingu, þar sem hin þá ungu Banda­ríki lýstu því yfir að Rómanska Ameríka væri lokuð keppi­nautum, nánar til­tekið Evr­ópu­ríkjum þess tíma.

Í stefn­unni var til­tölu­lega lítil athygli beint að Mið­aust­ur­löndum, sem lengi hafa verið Washington hug­leikin.

Bent var á við­leitni Banda­ríkj­anna til að auka orku­fram­boð heima fyrir en ekki við Persaflóa og sagði í stefn­unni: „Söguleg ástæða Banda­ríkj­anna fyrir því að ein­beita sér að Mið­aust­ur­löndum mun dvína.“

Í skjal­inu sagði að það væri for­gangs­at­riði fyrir Banda­ríkin að Ísrael væri öruggt, en þar var ekki notað jafn lof­sam­legt orða­lag um Ísrael og jafn­vel var gert á fyrsta kjör­tíma­bili Trumps.

Kína enn keppinautur

Varðandi Kína eru í stefn­unni end­ur­teknar kröfur um „frjálst og opið“ Asíu- og Kyrra­hafs­svæði en meiri áhersla var lögð á þjóð­ina sem efna­hags­legan keppi­naut.

Eftir vanga­veltur um hvort Trump myndi gefa eftir varð­andi Taívan, hið sjálf­stjórn­andi lýð­ræð­is­ríki sem stjórn­völd í Peking gera til­kall til, kom skýrt fram í stefn­unni að Banda­ríkin styðja óbreytt ástand.

Hins vegar var skorað á banda­menn­ina Japan og Suður-Kóreu að leggja meira af mörkum til að tryggja varnir Taívans.

Í stefn­unni er lítil áhersla lögð á Afríku og sagt að Banda­ríkin ættu að hverfa frá „frjáls­lyndri hug­mynda­fræði“ og þró­un­ar­að­stoð og tryggja sér þess í stað mik­il­væg jarð­efni.

Banda­ríkja­for­setar gefa yfir­leitt út þjóðar­ör­ygg­is­stefnu á hverju kjör­tíma­bili í Hvíta hús­inu. Sú síð­asta, sem Joe Biden gaf út árið 2022, lagði áherslu á að ná sam­keppn­is­for­skoti á Kína um leið og Rúss­landi væru settar skorður.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ég hef tekið eftir þvíaðalveg samahversembýðursigframíkosningum að um leið og sigur erunninnþá erlátiðeins ogekkerthafiveriðsagt og engulofað heldur ersamaleikritiðleikiðaftureinsogundanfarinarsemliðineruogþaðereinsogfólkiðnjótiþessaðlátaskattpínasigáallanmáta þangaðleitarklarinnþarsemhannerkvaldastur svoernúþað
    0
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Þetta er gömul saga og ný. Þegar heimsveldum fer hnignandi þá verða þau hættulegustu.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið undanfarið ár