Hagnaður bresku olíurisanna Shell og BP jókst verulega á þriðja ársfjórðungi ársins, líkt og hjá franska orkufyrirtækinu TotalEnergies. Samanlagður hagnaður fyrirtækjanna þriggja eftir skatta nam 25,1 milljarði Bandaríkjadala, jafnvirði um 3.045 milljarða íslenskra króna.
Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur raskað framleiðslu og útflutningi á olíu og gasi og leitt til hækkandi orkuverðs. Framboðsskortur á unnum olíuafurðum, svo sem bensíni og dísilolíu, hefur jafnframt orðið til þess að verð þeirra hefur hækkað meira en verð á hráolíu. Það hefur aukið framlegð olíuhreinsunarstöðva sem starfa utan átakasvæðanna og skilað fyrirtækjunum auknum hagnaði.
3.045 milljarðar króna
BP greindi frá því í morgun að hagnaður fyrirtækisins eftir skatta hefði fjórfaldast milli ára, úr 1,16 milljörðum dala, jafnvirði um 141 milljarðs króna, á þriðja ársfjórðungi síðasta árs í 4,7 milljarða dala, eða um …


















































Athugasemdir