Olíurisarnir græða stórfé á stríðinu í Mið-Austurlöndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Olíuvinnsla
Olíu­vinnsla Hækkandi orku­verð og aukin fram­legð í olíu­hreinsun hafa skilað stóru olíu­fyr­ir­tækj­unum auknum hagn­aði. Mynd: HUSSEIN FALEH / AFP

Hagnaður bresku olíu­risanna Shell og BP jókst veru­lega á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins, líkt og hjá franska orku­fyr­ir­tæk­inu Tota­lEnergies. Sam­an­lagður hagn­aður fyr­ir­tækj­anna þriggja eftir skatta nam 25,1 millj­arði Banda­ríkja­dala, jafn­virði um 3.045 millj­arða íslenskra króna.

Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur raskað fram­leiðslu og útflutn­ingi á olíu og gasi og leitt til hækk­andi orku­verðs. Fram­boðs­skortur á unnum olíu­af­urðum, svo sem bens­íni og dísilolíu, hefur jafn­framt orðið til þess að verð þeirra hefur hækkað meira en verð á hrá­olíu. Það hefur aukið fram­legð olíu­hreins­un­ar­stöðva sem starfa utan átaka­svæð­anna og skilað fyr­ir­tækj­unum auknum hagn­aði.

3.045 millj­arðar króna
Sam­an­lagður hagn­aður Shell, BP og Tota­lEnergies eftir skatta á þriðja árs­fjórð­ungi nam 25,1 millj­arði Banda­ríkja­dala, jafn­virði um 3.045 millj­arða króna.

BP greindi frá því í morgun að hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins eftir skatta hefði fjór­fald­ast milli ára, úr 1,16 millj­örðum dala, jafn­virði um 141 millj­arðs króna, á þriðja árs­fjórð­ungi síð­asta árs í 4,7 millj­arða dala, eða um …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Kapítalisminn þarf á sínu að halda, hann þrífst best við þessar aðstæður enda augljósar ástæður fyrir áframhaldandi stríðsrekstri hvar sem er í heiminum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár