Trump skiptir sér af kosningum í Hondúras

Donald Trump reynir að fella vinstri­s­inn­aðan for­seta­fram­bjóð­anda og koma að hægri manni.

Trump skiptir sér af kosningum í Hondúras
Donald Trump For­set­inn hefur hafið stór­felld afskipti af inn­an­lands­málum ríkja í Suður-Ameríku, sem áður fyrr var kölluð Bak­garður Sáms frænda, vegna stöðugra inn­gripa Banda­ríkj­anna þar. Mynd: AFP

Fram­bjóð­andi stjórn­ar­flokks­ins í for­seta­kosn­ing­unum í Hondúras sem fara fram á morgun sak­aði Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, um „afskipta­semi“ eftir að hann lýsti yfir stuðn­ingi við hægri­s­inn­aðan mót­fram­bjóð­anda hennar og sagð­ist ætla að náða fyrr­ver­andi for­seta.

„Það leikur eng­inn vafi á því að þetta eru tvær áþreif­an­legar aðgerðir, þremur dögum fyrir kosn­ingar, sem eru full­kom­lega afskipta­samar,“ sagði Rixi Moncada, fram­bjóð­andi vinstri­flokks­ins Libre, flokks sitj­andi for­seta Xiomara Castro, á blaða­manna­fundi á laug­ar­dag.

Rixi MoncadaFor­seta­fram­bjóð­andi til vinstri kvartar undan afskiptum Banda­ríkja­for­seta af kosn­ingum.

Trump lýsti á mið­viku­dag yfir stuðn­ingi við hægrifram­bjóð­and­ann Nasry Asfura, einn af þremur sig­ur­strang­leg­ustu fram­bjóð­end­unum í kapp­hlaup­inu, og sagði að þeir tveir gætu unnið saman gegn „fíkni­efna­komm­ún­istum“ svæð­is­ins.

Í gær gekk hann svo lengra, hót­aði að skera niður stuðn­ing Banda­ríkj­anna ef fram­bjóð­andi hans tap­aði – og til­kynnti óvænt að hann myndi náða fyrr­ver­andi for­set­ann Juan Orlando Hernandez, sem um leið hefur vakið upp spurn­ingar um stríð hans gegn fíkni­efnum.

Fyrr­ver­andi leið­togi Hondúras, úr sama flokki og Asfura, afplánar 45 ára fang­els­is­dóm í Banda­ríkj­unum eftir að hafa verið sak­felldur í fyrra fyrir fíkni­efna­smygl.

Hernandez, sem stýrði Mið-Amer­íku­rík­inu frá 2014 til 2022, var sak­aður af banda­rískum sak­sóknurum um að hafa greitt fyrir inn­flutn­ingi á um 400 tonnum af kóka­íni til Banda­ríkj­anna.

Hann var fram­seldur til Banda­ríkj­anna aðeins nokkrum vikum eftir að hann lét af emb­ætti.

Ákvörðun Trumps um að náða Hernandez var harð­lega gagn­rýnd af póli­tískum and­stæð­ingum hans í Banda­ríkj­unum og jafn­vel for­seta Kólumbíu, þar sem hún kemur þvert ofan í umdeildar hern­að­ar­að­gerðir Banda­ríkj­anna gegn fíkni­efna­smygli í Rómönsku Ameríku og yfir­stand­andi til­raunum og hót­unum gegn for­seta Venes­ú­ela á grund­velli ásak­ana um aðild að fíkni­efna­smygli.

Í her­ferð Trumps hafa yfir 80 manns verið drepnir í árásum á alþjóð­legu haf­svæði, sem sér­fræð­ingar hafa gagn­rýnt sem aftökur án dóms og laga.

Trump sagði í færslu sinni á sam­fé­lags­miðlum í gær að Hernandez „hafi, að sögn margra sem ég ber mikla virð­ingu fyrir, fengið mjög harða og ósann­gjarna með­ferð,“ án þess að útskýra það nánar.

Hann boð­aði síðan í dag að aðgerðir á landi gegn fíkni­efna­smygli hæfust senn og sagði loft­helgi Venes­ú­ela vera lok­aða.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár