Miðflokkurinn í sókn en Flokkur fólksins mælist án þingmanns

Mið­flokk­ur­inn bætir mestu við sig í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallups en Sam­fylk­ingin er áfram stærsti flokkur lands­ins. Flokkur fólks­ins mælist með tæp­lega fjög­urra pró­senta fylgi og næði ekki manni á þing. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina minnkar og mælist nú 47 pró­sent.

Tvö og þrjú
Tvö og þrjú Sjálf­stæð­is­flokkur Guðrúnar og Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs mæl­ast með næst­mesta og þriðja mesta fylgið. Mynd: Golli

Mið­flokk­ur­inn er í mestri sókn stjórn­mála­flokka sam­kvæmt nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallups sem birtur var á RÚV í dag. Flokk­ur­inn bætir við sig rúm­lega tveimur pró­sentu­stigum frá síð­ustu mæl­ingu og mælist nú með 17 pró­senta fylgi. Fylgi ann­arra flokka er nán­ast óbreytt.

Sam­fylk­ingin er áfram stærsti flokkur lands­ins með 29 pró­senta fylgi en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fylgir á eftir með 25 pró­sent. Viðreisn mælist með 10 pró­senta fylgi.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 6 pró­senta fylgi, sem myndi sam­kvæmt útreikn­ingum Gallups skila flokknum fjórum þing­mönnum. Vinstri græn mæl­ast með 3,5 pró­sent og myndu ná einum kjör­dæma­kjörnum þing­manni.

Flokkur fólks­ins, sem á sæti í rík­is­stjórn, mælist hins vegar með tæp­lega fjög­urra pró­senta fylgi og næði sam­kvæmt könn­un­inni ekki manni á þing.

Könnun Gallup 3. nóvember 2026
Fylgi flokka á landsvísu.
Samfylkingin
29,0%
Sjálfstæðisflokkurinn
25,0%
Miðflokkurinn
17,0%
Viðreisn
10,0%
Framsókn
6,0%
Flokkur fólksins
4,0%
Vinstri græn
3,0%
Heimild: Gallup. Strikalínan er 5% þröskuldurinn fyrir jöfnunarsæti.
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Fólk sem býr við stafræna útilokun er augljóslega ekki haft með í þessum könnunum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár