Samkaup hafa samið um kaup á Fjarðarkaupum í Hafnarfirði, sem hafa verið rekin sem sjálfstæð matvöruverslun um áratuga skeið. Kaupin marka því tímamót í sögu verslunarinnar, en þau eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Kaupverðið liggur ekki fyrir.
Þetta kemur fram í tilkynningu fasteignafélagsins Kaldalóns til Kauphallarinnar í morgun. Þar er greint frá því að Kaldalón hafi undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í félaginu 1717 ehf., sem á fasteignina að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, þar sem Fjarðarkaup hafa verið til húsa.
Samhliða fasteignaviðskiptunum hefur 1717 ehf. gert langtímaleigusamning við Samkaup, sem eru dótturfélag Dranga hf., um alla fasteignina. Samkaup munu taka við rekstri í húsnæðinu samhliða kaupum sínum á Fjarðarkaupum.
Heildarvirði fasteignafélagsins 1717 ehf. í viðskiptunum er tæpir 2,4 milljarðar króna. Að teknu tilliti til frádráttar vegna tekjuskattsskuldbindingar er virði fasteignarinnar sjálfrar metið á um 2,16 milljarða króna.
Kaldalón hefur skuldbundið sig til að …
















































Athugasemdir