RÚV birtir viðtal við Margréti Löf „í afneitun“

Margrét Löf, sem varð föður sínum að bana, vísar til áfalla og fjöl­skyldu­vanda í umfjöllun RÚV. Margrét lýsir sér sem „lífs­glaðri“ og „mjög góð­hjart­aðri“ mann­eskju sem hafi alltaf hugsað „mjög fal­lega“ til for­eldra sinna. Hún stefnir á að stofna eigin fjöl­skyldu og læra lækn­is­fræði.

RÚV birtir viðtal við Margréti Löf „í afneitun“
Margrét Löf Banaði föður sínum en segir í við­tali við RÚV að hún sé góð­hjörtuð og lífs­glöð.

RÚV fjallar í kvöld um „djúp­stæðan fjöl­skyldu­vanda sem varð sífellt óvið­ráð­an­legri“ í máli Mar­grétar Löf, sem ban­aði föður sínum í Súlunesi í Garðabæ, ásamt því að stórslasa móður sína.

Í við­tal­inu sem flutt er á RÚV segir Margrét frá erf­ið­leikum sem hún tengir ann­ars vegar við áföll, sem hún hafi „lent í“, og svo fjöl­skyld­unni.

Margrét var spurð hver ástæðan hefði verið fyrir því að fjöl­skyldan leit­aði sér hjálpar.

„Já, við leit­uðum okkur hjálpar eða aðstoðar sem fjöl­skylda, sem ein heild, af því að það voru ákveðnir erf­ið­leikar eða brestir sem við vildum vinna úr, vildum láta hlut­ina ganga upp og láta okkur líða vel saman,“ segir Margrét í við­tal­inu.

„Við erum fjöl­skylda sem þykir rosa­lega vænt um hvort annað og við áttum líka mjög góðar stundir, bara svo það sé tekið fram. Bara mjög góða tíma saman líka, sko. Þrátt fyrir að við leit­uðum okkur aðstoðar. Og við vildum allt það besta fyrir hvort annað líka og hugs­uðum mjög fal­lega til hvors ann­ars.“

Hún er spurð hvort fjöl­skyldu­með­ferðin hefði virkað.

„Já, mér fannst það. Á ein­hvern hátt. Gerði það, alger­lega. Það var alveg eitt­hvað sem virk­aði og hafði áhrif. En kannski ekki nógu mikið.“

Segist góðhjörtuð, hress og traust

Í við­tal­inu lýsir Margrét sér „fyrst og fremst sem mjög góð­hjart­aðri mann­eskju“.

Já, „ég elska að gefa af mér og láta gott af mér leiða og vera til staðar fyrir fólk.“ Og svo er ég trú, trygg, traust. Og svo er ég mjög metn­að­ar­gjörn og klára alltaf vel það sem ég tek mér fyrir hendur og vil skila því vel frá mér. Og svo er ég rosa mikil keppn­is­mann­eskja líka. Og finnst ofboðs­lega gaman að keppa.“

Þá sé hún „hrein­skilin, ein­læg, hress og góð í skóla og hafi fengið fjöl­mörg verð­laun fyrir náms­ár­angur.“

Stefnir í læknisnám

Margrét Löf stefnir á að stofna fjöl­skyldu og læra lækn­is­fræði.

„Mig lang­aði að nota og nýta þessa tón­list­ar­hæfi­leika sem ég hef meira. Líka var mein­ingin að læra eitt­hvað heil­brigðistengt og er jafn­vel ennþá að hugsa um dýra­lækn­inn, bara af því að ég elska dýr svo mikið. En svo var ég líka að pæla að fara annað hvort í lækn­is­fræð­ina eða beint í tauga­vís­indi, af því að ég hef svo mik­inn áhuga á manns­lík­am­anum yfir­höfuð og sér­stak­lega tauga­frumum og mænu­skaða, hef mikið verið að vinna með fólki með mænu­skaða. Mér finnst það bara svo heill­andi.“

Hún bætir við: „Og svo er nátt­úru­lega mark­miðið að stofna fjöl­skyldu, og allt þetta.“

Vísar til áfalla

Margrét gengst við því í við­tal­inu á RÚV að hafa glímt við van­líðan, en tengir hana við ótil­greind áföll.

 „Já, ég myndi lýsa mér sem bara mjög lífs­glaðri mann­eskju, en ég hef lent í áföllum sem hafa verið mis­stór. Og það er miklu meiri vinna sem þarf að leggja í ákveðin áföll frekar en önnur,“ segir hún og bætir við að enn eigi eftir að vinna úr ein­hverjum þeirra. „Það er mark­miðið að klára að vinna úr því öllu.“

„Öll þessi áföll sem ég hef lent í, þau hafa mótað mig. En ég hef alltaf unnið áfram með lífið og reynt að vinna úr hlut­unum á nátt­úru­legan og venju­legan hátt. Og hef aldrei til dæmis farið að leita í það að deyfa mig, hvort sem það er með fíkni­efnum eða áfengi eða neitt slíkt.“

Margréti verður tíð­rætt um áföll sem hún hafi lent í, sem hafi orsakað eyrna­vanda­mál, en á heim­ili hennar og for­eldra hennar gerði hún kröfu um að þau hefðu þögn. 

„Þetta er eitt­hvað svona við­vör­unar- og varn­ar­kerfi lík­am­ans. Sér­stak­lega ef ég var í ákveðnum aðstæðum. Og það er hægt að vinna í þessu og laga þetta til baka. En það getur ekki alltaf verið enda­laus streita. Og streita og streita. Og næsta áfall og næsta áfall og næsta áfall,“ segir Margrét í við­tal­inu.

Þá segir Margrét að hún hafi alltaf hugsað fal­lega til for­eldra sinna.

„Ég hugsa mjög fal­lega til þeirra. Beggja. Þetta er nátt­úru­lega fjöl­skyldan mín. Og bara það mik­il­væg­asta í mínu lífi. Það eru mamma og pabbi. Þetta eru nátt­úru­lega for­eldrar mínir og mér þykir mjög vænt um þau. Ég hef alltaf hugsað bara mjög fal­lega til þeirra. Og borið mikla ást til þeirra. Eins og þetta bara, að pabbi sé dáinn. Ég er ennþá bara í ein­hverri afneitun, held ég sko.“

Hún seg­ist sakna föður síns „alveg svaka­lega mikið. Ég er bara alveg að fara að gráta. Já, það er svo­leiðis,“ segir Margrét.

Foreldrarnir með áverka á við bardagamenn

Mar­grét Löf beitti for­eldra sína grófu heim­il­isof­beldi sem leiddi til dauða föð­ur henn­ar. Fram hefur komið að við hand­tök­una á afmæl­is­degi föður hennar, 11. apríl í fyrra, fannst henni und­ar­legt að for­eldr­ar sín­ir hefðu ekki ver­ið hand­tek­in sama dag og fað­ir henn­ar fannst þungt hald­inn. Fram kom í mati læknis að faðir hennar og móðir hefðu verið með áverka sem sam­ræmd­ust því sem bar­daga­í­þrótta­menn glíma við.

Margrét var dæmd í Hér­aðs­dómi Reykja­ness í des­em­ber í sextán ára fang­elsi fyrir að myrða föður sinn og sér­stak­lega hættu­lega lík­ams­árás gagn­vart móður sinni. Hún fær að erfa föður sinn þrátt fyrir að hálf­bróðir hennar hafi kraf­ist þess að hún yrði svipt erfða­rétti. Margrét áfrýj­aði dómnum.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sveinþór Eiríksson skrifaði
    Þetta sínir hversu einbeittur brotavilji hennar var, svo er bara að komast sem léttast út úr þessu.
    0
  • K Hulda Guðmundsdóttir skrifaði
    Af hverju heldur hún erfðaréttinum? Metin sakhæf! Óskiljanlegt hvorutveggja. Það væri sök sér, væri hún ósakhæf, en óskiljanlegt og varhugavert í ljósi sakhæfismats! Hvaða þekkingar á persónuleikaröskunum hafa dómarar í þessu máli aflað sér? Niðurstaða þeirra er óskiljanleg innri mótsögn. Fagleg fjarvera og fálæti um alvarleikann er yfirþyrmandi sorgleg útkoma.....
    6
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Þessi kona er stórkostlega geðröskuð og býr í einhverjum ímynduðum heimi sem enginn þekkir nema hún.
    8
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Al Capone leit líka á sig sem misskilið góðmenni.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár