„Ef þetta væri karlmaður værum við líklega ekki að hlusta á þessa hlaðvarpsþætti“

Afbrota­fræð­ingur seg­ist ekki sam­mála hneykslun sumra á við­tali við Margréti Höllu Löf sem var dæmd fyrir að bana föður sínum. Hún segir að málið sé ein­stakt á margan hátt og for­vitni eðli­leg.

Margrét Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum.
Margrét Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum.

Margrét Halla Hans­dóttir Löf fór fram á að rétt­ar­höldum yfir henni væri haldið fyrir luktum dyrum en steig síðan fram í við­tali í útvarps­þætti um málið á RÚV. Afbrota­fræð­ing­ur­inn Margrét Valdi­mars­dóttir, dós­ent við Háskóla Íslands, segir að það hafi komið á óvart að dóm­ari hafi fall­ist á að loka rétt­ar­höld­unum á sínum tíma.

Margrét Valdi­mars­dóttirAfbrota­fræð­ing­ur­inn Margrét er ekki sam­mála hneykslun almenn­ings, en finnst tíma­setn­ingin RÚV þátta umhugs­un­ar­verð.

Margrét segir almenna reglu vera að umfjöllun í fjöl­miðlum þegar kemur að saka­málum hafi áhrif, þótt erfitt sé að meta slíkt. Hún setur spurn­inga­merki við tíma­setn­ingu við­tals­ins en málið bíður þess að vera tekið fyrir í Lands­rétti.

„Tíma­setn­ing umfjöll­un­ar­innar er óheppi­leg þegar mál­inu er ekki lokið,“ segir Margrét. Flest gögn hnígi að því að umfjöllun um saka­mál hafi áhrif á almenn­ings­á­litið.

Spurð hvort það sé í raun eðl­is­munur á …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Súlunesmálið

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár