Eru alltaf sömu gestir hjá Gísla Marteini?

Algeng gagn­rýni í garð Vikunnar með Gísla Marteini er að sífellt bregði fyrir sama fólk­inu. En á það við ein­hver rök að styðj­ast? Greining Heim­ild­ar­innar sýnir að einn gestur hafi komið langoft­ast í þátt­inn, og það sama á við um algeng­asta tón­list­ar­flytj­and­ann.

Eru alltaf sömu gestir hjá Gísla Marteini?

Skemmti­þátt­ur­inn Vikan með Gísla Marteini hóf göngu sína á dag­skrá RÚV fyrir ára­tug. Í þátt­unum, sem eru flestum lands­mönnum kunn­ugir, fær hinn geð­þekki Gísli Marteinn Bald­urs­son til sín gesti – yfir­leitt þrjá til fjóra í hverjum þætti – sem sitja saman í sófa og spjalla við þátt­ar­stjórn­and­ann. Fastir liðir í þætt­inum eru yfir­ferð Gísla á fréttum vik­unnar, ein­hvers konar atriði, yfir­leitt tón­list, auk innslaga frá hinni satírísku Berg­lindi Festival.

„Alltaf sömu gestirnir í sófanum“

Fólk hefur mis­jafnar skoð­anir á þátt­unum, eins og gengur. Senni­lega er ein algeng­asta gagn­rýnin í garð Vikunnar þó sú að það sé sífellt sama fólkið sem sé boðið til að koma í þátt­inn. Ekki þarf að skoða kommenta­kerfin undir til­kynn­ingum um gesti hverrar viku fyrir sig lengi til að sjá röddum sem kvarta undan einmitt þessu bregða fyrir.

„End­ur­tekið þáttur með sama fólki ár eftir ár,“ skrif­aði Hannes Helgason við færslu RÚV um …

Kjósa
83
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    mér líkar vel við þessa þætti hjá gísla misjafnir en þó góð afþreiing gestirnir eru góðir og við erum heppin að okkur skuli ekki boðið.
    0
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Algengasta orðið sem sagt er í þessum þáttum er: hahahahahahaha! Eiginlega man maður ekki eftir neinu öðru sem sagt hefur verið.
    0
  • GKB
    Guðmundur Karl Björnsson skrifaði
    Fræðandi samantekt. Gísli treystir sér ekki til að hafa aðra en nafn-togaða viðmælendur, allt svo fólk sem hefur atvinnu af því að tala og vera frægt. Þess vegna verða þessir þættir hver öðrum líkir. Hann metur þetta eflaust svo að það c of mikil áhætta að bjóða amatör kjaftöskum og kjaftaskjóðum þátttöku. Þeir gætu orðið kjaftstopp... þurft að hugsa sig um smá stund og það má helst aldrei gerast.
    0
  • Viggó Jörgensson skrifaði
    Er Gísli Marteinn virkilega enn á skjánum?
    1
  • Tóti Steingríms skrifaði
    Endurtekið efni bara
    2
  • Helga Ingadóttir skrifaði
    Það er sem sagt mikið um sömu gesti og tónlistarflytjendur
    1
  • LCV
    Lowana Compton Veal skrifaði
    þess vegna er maður hættur að horfa. Kv.Siggi.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár