Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ekki ætla að fresta áformum um sérstaka gjaldtöku við Gullfoss, Geysi og Þingvelli þrátt fyrir kröfur sunnlenskra sveitarfélaga um að fyrst verði metin samanlögð áhrif skattahækkana og nýrra gjalda á atvinnulíf í landshlutanum.
„Við erum verkstjórn, við ætlum ekki að fresta þessu máli. Við látum verkin tala,“ sagði Kristrún í svari við fyrirspurn Guðrúnar Hafsteinsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag.
Guðrún vísaði til ályktunar ársþings Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í síðustu viku þar sem því var mótmælt að sívaxandi álögur á atvinnulíf gerðu Suðurland að „hraðbanka ríkissjóðs“. Sveitarfélögin hefðu krafist þess að áformunum yrði frestað þar til heildaráhrif þeirra hefðu verið metin.
„Við erum verkstjórn, við ætlum ekki að fresta þessu máli. Við látum verkin tala.“
Guðrún sagði fyrirhugaða gjaldtöku við náttúruperlur bætast við hækkun virðisaukaskatts á baðlón, kílómetragjald og aðrar álögur. Ríkisstjórnin yrði að skoða …























































Athugasemdir