Dómari stöðvaði lögmann Írisar Helgu

Brotaþoli lýsti flóknu ástarlífi Írisar Helgu Jónatans­dóttur sem er sökuð um umfangs­mikið umsáturs­einelti. Dómari stöðvaði lögmann Írisar Helgu þegar hann gekk á vitnið, og úr varð nokkurt orðaskak.

Ingi Tryggvason
Ingi Tryggva­son Dómari máls­ins benti lög­manni á að brota­þoli þyrfti ekki að svara spurn­ingum lög­manns. Mynd: Golli

Lögmaður Írisar Helgu Jónatans­dóttur, Helga Vala Helga­dóttir, og dómari í máli hennar lentu í orðaskaki þegar Helga Vala vildi fá að vita hvers vegna brota­þolinn, Ólafur Guðmundsson, hefði hætt störfum hjá Reykja­nesbæ.

Íris Helga er ákærð fyrir að hafa beitt Ólaf og fjöl­skyldu hans umsáturs­einelti sem hann segir hafa verið þeim gríðar­lega íþyngjandi. Íris Helga var ekki viðstödd í upphafi réttar­haldanna, þegar samverka­maður hennar bar vitni, en var komin í salinn þegar Ólafur gaf skýrslu.

Flókið ástarlíf Írisar Helgu

Ólafur lýsti umfangs­miklu umsáturs­einelti og brast í grát þegar hann sagði frá því að fjöl­skyldan þyrfti að fylgja ákveðinni „rútínu“ á hverjum degi til að verjast elti­hrelli.

Í framburði hans kom fram að hann hefði átt í stuttu ástar­sambandi við Írisi Helgu sem virðist hafa leitt til þess að hún varð ólétt. Ólafur sagði að á sama tíma hefði Íris Helga einnig átt í ástar­sambandi við barns­föður …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Írisarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár