Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvarlegan mænuskaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dular­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grensás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjónustu. Barátta hennar hefur þegar skilað fordæma­lausri ákvörðun í heilbrigðis­ráðuneytinu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auðveldara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Katla Guðna­dóttir byrjaði að safna húðflúrum 18 ára gömul.

Eitt þeirra er fyrir foreldra hennar. Annað er persónan Eyrnaslapi úr Bangsímon-sögunum. Enn annað múmínálfur en svo má sjá gleymérei og fiðrildi bregða fyrir á upphandleggjunum.

Eitt húðflúr­anna vekur sérstaka eftirtekt: „One day at a time“ með skraut­skrift.

Er það nýtt? „Nei,“ svarar Katla.

Hún segist hafa haft þetta hugarfar – „einn dag í einu“ – löngu áður en lífið hennar breyttist.

Annað húðflúr er í anda tvíbura­merkisins, stjörnu­merkis Þrastar Steins Magnússonar, kærasta hennar, sem kemur til hennar á hverjum degi. Á fram­handleggnum er hún með tvo teninga með hjörtum í stað punkta, tákn um það hversu miklu gæfan stjórnar, en að kærleikurinn sé alltaf með í för.

„Lífið er stutt,“ segir Katla. „Mjög stutt. Og þú átt alltaf að reyna að njóta þess.“

Katla er með hæsta mænuskaða sem nokkur hefur lifað …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífið á Grensás

Mest lesið undanfarið ár