Nýja einkarekna sjúkrahúsið Litli spítalinn er fjármagnað af athafnakonunni Katrínu Pétursdóttur, sem nýlega seldi fyrirtækið sitt Lýsi hf, sem hún hefur verið kennd við, til útgerðarfélagsins Brims. Spítalinn verður rekinn í fyrrverandi höfuðstöðvum Landsvirkjunar við Háaleitisbraut 68, sem útgerðarmaðurinn Kristján Vilhelmsson, einn stofnenda Samherja, keypti í fyrra í gegnum fasteignafélag sitt Landsbyggð ehf.
Skráður eigandi Litla spítalans er félagið Helga Medical ehf. Guðrún Ása Björnsdóttir er eigandi félagsins. Guðrún Ása, sem er fædd 1981, var framkvæmdastjóri Klíníkurinnar en hætti störfum í júlí í fyrra án skýringa. Guðrún Ása er eiginkona Halldórs Benjamíns Þorbergssonar, forstjóra fasteignafélagsins Reita, sem áður var framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Halldór Benjamín er varamaður í stjórn Helga Medical ehf. sem á Litla spítalann. Bæði félögin eru skráð til heimilis á heimili þeirra við Reynimel í Reykjavík. Engin starfsemi hefur verið í Helga Medical ehf. síðustu ár.
Guðrún Ása var líka aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra árið 2022. Willum Þór …























































Athugasemdir