Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm

Silja Rut Ragn­ars­dóttir, fimm­tug þriggja barna móðir úr Hafn­ar­firði, man skýrt þann dag fyrir þrjá­tíu árum sem henni varð ljóst að ekki væri allt með felldu. Hún ætl­aði sér ferð niður stig­ann í litla fjöl­býl­is­hús­inu sem hún bjó í að sækja póst­inn. Hún þurfti ein­ungis að fara niður örfá skref en á leið­inni niður upp­lifði hún sjón­trufl­anir með þeim afleið­ingum að hún þurfti að hafa sig alla við að fóta sig var­lega. Höfuðið var þungt og fæturnir bólgnir, langt umfram það sem tald­ist eðli­legt fyrir grann­vaxna unga konu. Hún var þá nítján ára og gengin rúm­lega tutt­ugu vikur með sitt fyrsta barn.

„Það er eig­in­lega fyrsti vísir­inn að þessu,“ segir Silja Rut í dag. „Þessi svaka­legi bjúgur, þungi í höfð­inu og ein­hverjar sjón­trufl­anir.“ Ein­kennin sem Silja lýsir eru ein­kenni sem gjarnan er ski­mað eftir í mæðra­vernd í dag. Hún var með með­göngu­eitrun (e. pre eclampsia). Það er algengur sjúk­dómur …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár