Pútín kvaðst vera til í friðarviðræður

Þriggja tíma fundi erind­reka Trumps með Pútín lauk með því að Rúss­lands­for­seti skaut á hug­myndir Evrópu en sam­þykkti við­ræður.

Lofaði Pútín
Lofaði Pútín Steve Witkoff, vinur, við­skipta­fé­lagi og erind­reki Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, sagði að Vladimír Pútín væri mann­vinur. Mynd: KRISTINA SOLOVYOVA / AFP

Tillögur Úkraínu og Evr­ópu­ríkja um hvernig binda megi enda á stríðið í Úkraínu voru ekki sér­lega efn­is­ríkar, að sögn rúss­neskra stjór­valda í Kreml. Steve Witkoff, erind­reki Banda­ríkj­anna, kynnti Vladimír Pútín for­seta þær í dag.

Stjórn Vla­dimírs Pútín bætti þó við að Rússland væri reiðu­búið að hefja þrí­hliða við­ræður við Úkraínu og Banda­ríkin á ný í nóv­em­ber.

Witkoff ræddi við Pútín í meira en þrjár klukku­stundir í Sankti Pét­urs­borg í dag. Banda­ríkja­stjórn leit­ast við að blása nýju lífi í við­leitni til að binda enda á stríðið í Úkraínu, sem hefur lengi verið í sjálf­heldu.

Átökin, sem nú standa á fimmta ári, eru þau mann­skæð­ustu í Evrópu frá síð­ari heims­styrj­öld.

„Steve Witkoff gerði Vladimír Pútín grein fyrir því sem rætt var í Ósló,“ sagði Júrí Úsjakov, aðstoð­ar­maður í Kreml, við frétta­menn. Hann vís­aði til við­ræðna sem Witkoff átti við úkra­ínska og evr­ópska emb­ætt­is­menn í Noregi í gær.

…
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ef að núverandi stjórn hefði verið í Bandaríkjunum á árum seinni heimstyrjaldarinnar þá hefði Trump verið bandamaður þriðja ríkisins og Witkoff og Kushner hefðu verið sendir til að gera samninga um lúxus uppbyggingu í rústum gettósins í Varsjá. Peningar eru helvítis dúndur dóp, sem rænir fólki öllum ærlegum eiginleikum.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár