Hafa litlar væntingar til nýrra viðræðna um frið í Úkraínu

Full­trúar Úkraínu, Rúss­lands og Banda­ríkj­anna hefja við­ræður í Abu Dhabi í dag um leiðir til að binda enda á stríðið í Úkraínu. Þetta eru fyrstu við­ræður ríkj­anna þriggja í meira en níu mán­uði. Evr­ópu­ríki ótt­ast að Banda­ríkin og Rússland semji sín á milli um fram­tíð örygg­is­mála í Evrópu.

Hafa litlar væntingar til nýrra viðræðna um frið í Úkraínu
Frið­ar­við­ræður Selenskí Úkra­ínu­for­seti deilir ekki sýn Pútíns á fram­tíð Úkraínu. Litlar vænt­ingar eru gerðar til við­ræðna ríkj­anna í Abu Dhabi í dag. Mynd: Samsett / AFP

Samn­inga­menn frá Úkraínu, Rúss­landi og Banda­ríkj­unum funda í Abu Dhabi í dag um leiðir til að binda enda á mann­skæð­ustu átök í Evrópu frá síð­ari heims­styrj­öld. Þetta er fyrsti fundur ríkj­anna þriggja af þessu tagi í meira en níu mán­uði.

Evr­ópu­ríki munu einnig senda full­trúa til Abu Dhabi, enda hafa hug­myndir Donalds Trumps Banda­ríkja­for­seta um sam­komu­lag við Rússa um örygg­is­mál í Evrópu vakið ugg meðal þeirra. Enn einn stríðs­vet­ur­inn er nú í aðsigi.

Evr­ópu­ríki og Úkraína ótt­ast að Banda­ríkin muni þvinga stjórn­völd í Kænu­garði til að sam­þykkja sam­komu­lag sem jafn­gildi í raun upp­gjöf. Trump virð­ist á þessu ári hafa færst nær afstöðu Rússa.

Trump hefur þrýst á um að stríð­inu milli Rúss­lands og Úkraínu ljúki allt frá því að hann tók aftur við for­seta­emb­ætt­inu. Fyrri við­ræður hafa þó ekki skilað neinum afger­andi árangri og frið­ar­um­leit­an­irnar féllu í skugg­ann af stríði Banda­ríkj­anna og Ísraels gegn Íran.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár