Verðbólgan hækkar leiguna en bítur í hagnaðinn

Rekstur þriggja stærstu fast­eigna­fé­lag­anna í Kaup­höll­inni hefur skilað auknum hagn­aði það sem af er ári þrátt fyrir háa vexti og verð­bólgu. Leigu­tekjur hafa hækkað umfram almennt verð­lag, en verð­bætur af skuldum félag­anna námu tæpum 21 millj­arði króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Tvö félag­anna töp­uðu á þriðja árs­fjórð­ungi.

Verðbólgan hækkar leiguna en bítur í hagnaðinn
Fast­eigna­fé­lögin Halldór Benjamín Þor­bergs­son, for­stjóri Heima, Guðni Aðal­steins­son, for­stjóri Reita, og Hreiðar Már Her­manns­son, for­stjóri Eikar. Mynd: Samsett

Leigu­tekjur fast­eigna­fé­lag­anna Heima, Reita og Eikar juk­ust sam­an­lagt um 4,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, miðað við sama tíma­bil í fyrra. Félögin höfðu alls 37,2 millj­arða í leigu­tekjur, sem er 14 pró­senta aukn­ing og tals­vert umfram almenna verð­lags­þróun. Rekstr­ar­hagn­aður þeirra fyrir mats­breyt­ingar jókst enn meira, eða um 15 pró­sent.

Á sama tíma hækk­uðu hrein fjár­magns­gjöld félag­anna um rúma ell­efu millj­arða króna og námu 32,3 millj­örðum. Það er meira en sam­an­lagður rekstr­ar­hagn­aður þeirra fyrir mats­breyt­ingar, sem nam 26 millj­örðum króna. Hjá Eik er rekstr­ar­hagn­að­ur­inn einnig reikn­aður fyrir afskriftir og sölu­hagnað.

20.700 millj­ónir
Verð­bætur á skuldum fast­eigna­fé­lag­anna þriggja námu 20,7 millj­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, tæpum níu millj­örðum meira en á sama tíma­bili í fyrra.

Félögin skil­uðu sam­an­lagt 9,5 millj­arða króna hagn­aði eftir skatta, tæpum þremur millj­örðum minna en á sama tíma­bili í fyrra.

Verðbólgan hækkar bæði leiguna og skuldirnar

Fast­eigna­fé­lögin fá stóran …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár