Loftslagsráðstefnan COP31 hófst í dag með deilum um fjármögnun. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvatti leiðtoga heimsins til að „taka loftslagsvána alvarlega“ eftir ár sem einkenndist af mannskæðum veðuröfgum.
Antonio Guterres lét þessi orð falla þegar þúsundir þátttakenda streymdu að víðáttumikilli sýningarmiðstöð í Antalya, við Miðjarðarhafsströnd Tyrklands, þar sem árleg tveggja vikna loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna fer fram.
Ráðstefnan er haldin eftir ár mikilla hitabylgna í Evrópu, stórfelldra skógarelda í Indónesíu og hamfaraflóða í Nepal. Óvenjulega öflugt El Niño-veðurfyrirbæri hefur ýtt enn frekar undir öfgar í veðurfari.
„Öld loftslagsöfga er runnin upp,“ sagði Guterres í yfirlýsingu.
Hann hvatti leiðtoga til að „taka málin alvarlega með því að draga hraðar úr losun, flýta fyrir réttlátum umskiptum frá jarðefnaeldsneyti og tryggja viðkvæmum ríkjum það fjármagn og þá vernd sem þau þurfa“ í tæka tíð.
Opnunarathöfn COP31 hófst hins vegar einum og hálfum tíma of seint, án þess að …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
























Athugasemdir