Mannaráðningar Trumps eftir tapið vekja ugg

Donald Trump bauð bar­daga­kapp­anum Dana White, for­stjóra UFC, starf blaða­full­trúa Hvíta húss­ins og skip­aði Stephen Miller starfs­manna­stjóra sinn.

Mannaráðningar Trumps eftir tapið vekja ugg
Eftir tapið Donald Trump á við­burði í Cape Canaveral í Flórída í gær. Eftir þing­kosn­ing­arnar hefur hann skipt um starfs­manna­stjóra og kallað eftir rann­sókn á demókrötum. Mynd: SAMUEL CORUM / Getty Images via AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti tók harða afstöðu í dag í aðdrag­anda þess að demókratar tækju við meiri­hluta á Banda­ríkja­þingi. Hann bauð vini sínum Dana White, sem hann kall­aði „ofbeld­is­fullan bar­daga­mann“, starf blaða­full­trúa Hvíta húss­ins og fyr­ir­skip­aði dóms­mála­ráðu­neyt­inu að rann­saka and­stæð­inga sína. Þá hafði hann þegar skipt um starfs­manna­stjóra, fengið til verks­ins öfga­fulla hug­mynda­fræð­ing­inn Stephen Miller í stað hinnar jarð­bundnu Susan Wiles.

Demókratar unnu stór­sigur á repúblikönum Trumps í þing­kosn­ing­unum í vik­unni og taka við meiri­hluta í báðum deildum þings­ins í jan­úar. Þeir hafa heitið umfangs­miklum rann­sóknum á Trump og hátt­settum emb­ætt­is­mönnum.

Trump sýndi hins vegar engin merki þess að úrslitin hefðu dregið úr bar­áttu­hug hans.

Hann bauð White starf blaða­full­trúa Hvíta húss­ins. White er dyggur stuðn­ings­maður hans og stýrir sam­tök­unum Ultimate Fighting Championship (UFC), sem standa fyrir keppni í blönd­uðum bar­daga­listum.

Bardagi við Hvíta húsiðBar­daga­menn keppa í búri á suð­ur­flöt Hvíta húss­ins. UFC stóð þar fyrir bar­daga á átt­ræð­is­af­mæli Donalds Trumps í júní.

„Dana, taktu starfið!“ skrif­aði Trump á sam­fé­lags­miðlum og kall­aði White „ofbeld­is­fullan bar­daga­mann og stríðs­mann“.

Fyrr hafði hann fyr­ir­skipað dóms­mála­ráðu­neyt­inu að rann­saka demókrata vegna „fjár­kúg­unar á æðsta stigi“ og kallað eftir fang­els­is­dómum.

Til­kynn­ingar dags­ins koma degi eftir að Trump skip­aði Stephen Miller næsta starfs­manna­stjóra sinn og kall­aði þennan her­skáa hátt­setta ráð­gjafa „mik­inn bar­áttu­mann“.

Bar­áttu­tónn­inn í færsl­unum minnti á ummæli Trumps eftir minna kosn­ingatap í þing­kosn­ingum árið 2018. Þá sagði hann að Hvíta húsið myndi taka upp „hern­að­ar­lega afstöðu“ gagn­vart öllum rann­sóknum. Trump var síðar ákærður fyrir emb­ætt­is­brot árin 2019 og 2021.

„Ofbeldisfullur bardagamaður og stríðsmaður“

Hvíta húsið hefur verið án blaða­full­trúa síðan 16. októ­ber, þegar Katie Zacharia hætti eftir tæpa viku í starfi.

White þáði starfið ekki berum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið undanfarið ár