Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í samtali við CNN „afar ólíklegt“ að átök við Íran hefjist á ný. Ummælin lét hann falla áður en hann fundar í dag með forsætisráðherra Katars, sem hefur gegnt hlutverki sáttasemjara.
Trump hefur undanfarnar vikur hótað að hefja árásir að nýju. Bandarískir fjölmiðlar hafa greint frá því að átök kynnu að hefjast aftur eftir þingkosningarnar á þriðjudag í síðustu viku.
Í viðtali við CNN í gær sagði forsetinn „afar ólíklegt“ að átök hæfust á ný, en varaði við því að ákvörðun hans „réðist af því hvort þeir undirrituðu mjög traustan samning“.
„Ég myndi gera það ef þörf krefði, en við réðumst mjög harkalega á þá. Ég réðst svo harkalega á þá. Þið hafið ekki hugmynd um hversu harkalega ég réðst á þá,“ sagði hann.
Trump á að hitta forsætisráðherra Katars, sjeik Mohammed bin Abdulrahman Al Thani, í Hvíta húsinu í dag. …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.









































Athugasemdir